Fara í efni  

Fréttir

Norðurslóðaáætlunin auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki

Norðurslóðaáætlunin (NPA) er samstarfsverkefni Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands, Írlands, Norður-Írlands, Íslands, Grænlands, Færeyja og Noregs. Markmið NPA er að aðstoða íbúa á norðurslóðum við að skapa þróttmikil og samkeppnishæf samfélög með sjálfbærni að leiðarljósi.

Áherslur NPA varðandi verkefnastuðning:

1. Nýsköpun.
1.1 Yfirfærsla nýrrar tækni og þekkingar.
1.2 Nýsköpun í opinberri þjónustu.

2. Frumkvöðlastarfsemi.
2.1 Efla stoðkerfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
2.2 Stækkun markaða.

3.  Endurnýjanlegir orkugjafar og orkusparnaður.
3.1 Aukin notkun orkusparandi úrræða og endurnýjanlegrar orku.

4.  Samfélag og menningarleg arfleið og verndun auðlinda.
4.1 Efla sjálfbæra umhverfisstjórnun.

Nánari upplýsingar um áherslur, forgangsverkefni og umsóknarkerfið er að finna hér 

Umsóknarfrestur til 28 febrúar 2018 til klukkan 23:59 á Kaupmannahafnartíma.

Heildarstærð verkefna er 2 milljónir evra. Hámarksstyrkur er 60% og mótframlag er 40%, en styrkir til  fyrirtækja eru háðir 50% mótframlagi. Umsóknaraðilar verða að lágmarki að vera þrír frá þremur samstarfslöndum og a.m.k. einn þarf að vera frá ESB landi, þ.e. Finnlandi, Svíþjóð, Skotlandi, Írlandi eða Norður-Írlandi. 

Umsóknaraðilar geta verið opinberar stofnanir, sveitarfélög, landshlutasamtök rannsóknarstofnanir, menntastofnanir, atvinnuþróunarfélög, frjáls félagasamtök, félagsleg fyrirtæki og lítil og meðalstór fyrirtæki. Fyrirtæki getur verið þátttakandi í verkefnum á áherslusviðum 1., 2. og 3. og samstarfsaðilar í verkefnum á áherslusviði 4.

Mikilvægt er að verkefni skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, sjálfbæra þróun í samfélögum og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.

Handbók NPA er að finna hér

How to Apply Seminar verða í Kaupmannahöfn 23. nóvember 2017 og 18. janúar 2018. 

Nánari upplýsingar veitir tengiliður NPA á Íslandi, Sigríður Elín Þórðardóttir á Byggðastofnun, netfang sigridur@byggdastofnun.is og sími 455 5400.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389