Fara í efni  

Fréttir

Norðurslóðaáætlunin opnar fyrir umsóknir 1. október 2017

Norðurslóðaáætlunin (NPA) er samstarfsverkefni Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands, Írlands, Norður-Írlands, Íslands, Grænlands, Færeyja og Noregs. Markmið NPA er að aðstoða íbúa á norðurslóðum við að skapa þróttmikil og samkeppnishæf samfélög með sjálfbærni að leiðarljósi.

Ástæða tilkynningarinnar núna er til að veita væntanlegum umsóknaraðilum rúman tíma til að þróa verkefnahugmyndir sínar, finna samstarfsaðila og tryggja mótframlög. Óskað er eftir styrkumsóknum sem falla að eftirfarandi áherslusviðum:

  1. Nýsköpun.
    1. 1.1 Yfirfærsla nýrrar tækni og þekkingar.
    2. 1.2 Nýsköpun í opinberri þjónustu.
  2. Frumkvöðlastarfsemi.
    1. 2.1 Efla stoðkerfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
    2. 2.2 Stækkun markaða.
  3. Endurnýjanlegir orkugjafar og orkusparnaður.
    1. 3.1 Aukin notkun orkusparandi úrræða og endurnýjanlegrar orku.
  4. Náttúru- og menningarleg arfleið og verndun auðlinda.
    1. 4.1 Efla sjálfbæra umhverfisstjórnun.

Umsóknarfrestur er til 28 febrúar 2018.  

Heildarstærð verkefna er 2 milljónir evra. Hámarksstyrkur er 60% og mótframlag er 40%, en styrkir til  fyrirtækja eru háðir 50% mótframlagi. Umsóknaraðilar verða að lágmarki að vera þrír frá þremur samstarfslöndum og a.m.k. einn þarf að vera frá ESB landi, þ.e. Finnlandi, Svíþjóð, Skotlandi, Írlandi eða Norður-Írlandi. 

Umsóknaraðilar geta verið opinberar stofnanir, sveitarfélög, landshlutasamtök rannsóknarstofnanir, menntastofnanir, atvinnuþróunarfélög, frjáls félagasamtök, félagsleg fyrirtæki og lítil og meðalstór fyrirtæki. Fyrirtæki getur verið þátttakandi í verkefnum á áherslusviðum 1., 2. og 3. og samstarfsaðilar í verkefnum á áherslusviði 4.

Mikilvægt er að verkefni skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, sjálfbæra þróun í samfélögum og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.

Upplýsingar um markmið, áherslur og árangursmælikvarða er að finna hér

How to Apply Seminar verða haldin í Kaupmannahöfn 23. nóvember 2017 og 11. janúar 2018. 

Nánari upplýsingar veitir tengiliður NPA á Íslandi, Sigríður Elín Þórðardóttir á Byggðastofnun, netfang sigridur@byggdastofnun.is og sími 455 5400.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389