Fara í efni  

Fréttir

Opnað fyrir umsóknir um framlög úr stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, sbr. aðgerð C.1 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Sérstök áhersla verður lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa varanleg og veruleg jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang.

Landshlutasamtök sveitarfélaga f.h. sóknaráætlanasvæða geta sótt um þau framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 120 milljónum króna veittar til sértækra verkefna svæðanna. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Valnefndina skipa þau Stefanía Traustadóttir, formaður, Elín Gróa Karlsdóttir og Magnús Karel Hannesson. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Umsóknarfrestur er til miðnættis 30. september 2018.

Fleiri samkeppnisframlög verða veitt á grundvelli einstakra aðgerða byggðaáætlunar á gildistíma hennar. Má þar nefna framlög vegna verkefna á sviði almenningssamgangna, verslunar í strjálbýli og fjarvinnslustöðva. Opnað verður fyrir umsóknir vegna þeirra aðgerða á næstu vikum.

Framangreindar auglýsingar byggjast á nýsamþykktum reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er reglunum ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun. Reglurnar kveða meðal annars á um að ráðherra upplýsi árlega um skiptingu fjárheimilda til byggðaáætlunar og annarra byggðatengdra verkefna. Þá fjalla reglurnar um hvernig standa skuli á auglýsingum um styrki og framlög, úthlutunarskilmálum og annarri framkvæmd styrkveitinga.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389