Fara í efni  

Fréttir

Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna fjarvinnslustöðva, sbr. aðgerð B.8 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið aðgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Stofnanir sem ráðast í slík átaksverkefni utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um stuðning en á árinu 2018 verður veitt allt að 30 milljónum króna í aðgerðina. Heimilt er að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert verkefni. Þá er heimilt að veita styrki til sama verkefnis til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir hvers árs.

Allar stofnanir ríkisins utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins geta sótt um. Stuðst er við þá skilgreiningu að vinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins nái suður og vestur yfir Suðurnes, austur fyrir Selfoss og norður að Borgarnesi, svokallað Hvítá-Hvítá svæði. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Umsóknarfrestur er til miðnættis 12. október 2018.

Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir um framlög vegna sértækra verkefna sóknaráætlana og verður á næstu vikum opnað fyrir umsóknir vegna verslunar í strjálbýli og verkefna á sviði almenningssamgangna. Framangreindar úthlutanir byggja á nýsamþykktum reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er þeim ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.

Fylgiskjöl:

Auglýsing um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Rafrænt umsóknareyðublað um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Stefnumótandi byggðaáætlun 2018 til 2024

Reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389