Fara í efni  

Fréttir

Skaftárhreppur til framtíðar – fjörugar umræður á íbúafundi

Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri vegna verkefnisins Skaftárhreppur til framtíðar var haldinn miðvikudagskvöldið 4. nóvember sl.

 Fundinn sóttu um fimmtíu manns og ræddu framtíð samfélagsins af miklum áhuga fram eftir kvöldi.  

Afhentir voru fimm styrkir á vegum verkefnisins að fjárhæð 7 mkr. Þá hlutu:

  •  Ingólfur Hartvigsson með verkefnið Pílagrímagöngur
  • Hótel Efri Vík með verkefnið Fræðslustígur
  • Kirkjubæjarstofa með verkefnin Þáttur í þróun byggðar, Brunasandur og Sigur lífsins
  • Friður og frumkraftar með verkefnin Hvað er í matinn? og Hönnunarsamkeppni um minjagrip úr Skaftárhreppi

 Eirný Valsdóttir verkefnisstjóri gerði grein fyrir fyrir stöðu verkefnisins og rifjaði upp forgangsmál íbúaþingsins frá haustinu 2013. Síðan hófust hópumræður um framtíðarsýn og markmið verkefnisins  Skaftárhreppur til framtíðar. Umræðuefnin voru þessi: 

  • Atvinnumál
  • Grunnstoðir
  • Nýting náttúru, menningar og sögu
  • Ímynd svæðisins
  • Menntun – ungmenni

 Undir hverjum lið voru nokkur stikkorð, en málefnin eru í samræmi við áherslur íbúaþingsins 2013. Hóparnir fluttu sig milli borða eftir svokallaðri „heimskaffi“aðferð þannig að hver einasti fundargestur fékk tækifæri til að setja fram skoðanir sínar á öllum málefnunum.

 Skemmst er frá að segja að margar nýjar og frumlegar hugmyndir komu fram í hópunum samhliða því sem málefni sem áður höfðu verið rædd voru rifjuð upp og skoðuð frá ýmsum hliðum

 Verkefnisstjóri vinnur úr umræðum fundarins og verður sett upp framtíðarsýn og markmið fyrir verkefnið í framhaldinu.

 Í verkefnisstjórn sitja: Sandra B. Jóhannsdóttir sveitarstjóri, Þórarinn E. Sveinsson SASS, Auðbjörg B. Bjarnadóttir og Auður Guðbjörnsdóttir, fulltrúar íbúa og Sigríður K. Þorgrímsdóttir og Kristján Þ. Halldórsson frá Byggðastofnun. Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri SASS og Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar taka einnig þátt í starfinu.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389