Fara í efni  

Fréttir

Veljum Vopnafjörð - lok verkefnis

Verkefninu  „Veljum Vopnafjörð“, sem hófst með íbúaþingi í apríl 2016 er nú formlega lokið. Verkefnið var leitt af Vopnafjarðarhreppi, með stuðningi frá Byggðastofnun, Austurbrú og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. ILDI rjáðgjöf sá um framkvæmd og skipulag verkefnisins.

Kjarni verkefnisins var áhersla á samtal og samstarf við íbúa, höfða til frumkvæðis íbúanna, frumkvöðla og ungs fólks. Í því skyni var m.a. haldið málþing sl. vorið 2017 undir yfirskriftinni, Yngri, kraftmeiri og fjölbreyttari Vopnafjörður, sem byggir á skilaboðum íbúaþings.

Verkefnisstjórn skilaði formlega af sér til sveitarstjórnar síðastliðið haust, niðurstöðum verkefnisins í „Stefnuplaggi“ sem einnig var dreift til íbúa sveitarfélagsins. 

Það getur reynst erfitt að meta hverju verkefnið hefur skilað, en ýmislegt hefur þó gerst sem beint eða óbeint má rekja til íbúaþingins og verkefnisins. Á tímabilinu frá því að verkefnið fór af stað hefur fólki fjölgað, þá sérstaklega ungu barnafólki.  Félagsstarf  barna og unglinga hefur verið eflt með ráðningu á starfsmanni í málaflokkinn. Ungmennaráð hefur tekið til starfa.  Þjónusta við eldri borgara hefur verð sett undir einn hatt og kynnt með útgáfu og dreifingi á sérstökum bæklingi. Upplýsingasíðan Visit Vopnafjörður var tekin í notkun fyrir um ári. Samningur hefur verið gerður við Minjasafnið að Bustarfelli og Hjáleiguna veitingahús um aðkomu sveitarfélagsins að rekstri safnsins og veitingahússins.  Unnið var með frumkvöðlum og er m.a. verkefnið „The Extreme Challenge“ dæmi um skemmtileg verkefni sem leidd voru af öflugum einstaklingum. Þá má nefna verkefni tengd listamannadvöl og menningarmálum.  Á næstu dögum fer í dreifingu og inn á heimasíðu sveitarfélagsins upplýsingarit á íslensku, ensku og pólsku um þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu og hvernig má nálgast hana.  Könnun var gerð á miðjum vetri um hug manna til sameiningar á svæðinu. Niðurstöðurnar hafa verið kynntar og gerðar aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins.  Unnið hefur verið í skipulagsmálum með það að markmiði að landeigendur geti byggt upp starfsemi s.s. tengda ferðaþjónustu á jörðum í  dreifbýli Vopnafjarðar. Ýmislegt fleira mætti nefna, en þá er vert að vísa til Stefnuplaggsins, þar sem fleiri verkefni eru tiltekin og urðu þau flest að veruleika.

Sjá má öll gögn um verkefnið á vef Vopnafjarðarhrepps, hér.

 Myndir: Kristján Þ. Halldórsson


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389