Fara í efni  

Fréttir

Verkefnislýsing fyrir Brothættar byggðir

Nú má finna verkefnislýsingu fyrir verkefnið Brothættar byggðir á heimasíðu Byggðastofnunar. Verklýsingunni fylgja fjölmargir viðaukar þar sem ýmsir þættir verkefnisins eru nánar útfærðir.

Upphaf verkefnisins Brothættar byggðir má rekja til samstarfs við Norðurþing sem hófst á árinu 2012 vegna bráðavanda á Raufarhöfn sem þó átti sér langan aðdraganda í kjölfar missis aflaheimilda. Síðan hefur verkefnið vaxið frá því að vera tilraunaverkefni á Raufarhöfn í það að vera verklag sem nýtur fjárheimilda á fjárlögum og nær verkefnið nú til sjö samfélaga víðsvegar á landinu. Byggðastofnun hafði með samstarfsaðilum sínum lagt drög að uppfærðu verklagi á fyrrihluta árs 2014 sem meðal annars byggði á reynslu af vinnu í fyrstu fjórum byggðarlögunum og skoðun á byggðaþróunarverkefni í Noregi   (www.regionalomstilling.no). Veturinn 2014/2015 lét atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gera úttekt á verkefninu Brothættar byggðir. Í kjölfar þess hafa starfsmenn Byggðastofnunar unnið að endurskoðun lýsingar á verkefninu og verkferlum þess. Afrakstur þeirrar vinnu, það er verkefnislýsinguna og viðauka með henni, má finna hér.

Það er von Byggðastofnunar að verkefnislýsingin verði til að skerpa sýn þeirra sem að verkefnum Brothættra byggða koma á það hvernig kraftar þeirra nýtist sem best og hvernig samtakamáttur verkefnisaðila verði sem mestur, viðkomandi byggðarlögum til heilla.

Fréttatilkynning frá Byggðastofnun 22. mars 2016

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389