Fara í efni  

Fréttir

Frá íbúafundinum á Bíldudal

Tímamót í verkefninu „Bíldudalur – samtal um framtíðina“

Þegar verkefnið „Bíldudalur – samtal um framtíðina“, hófst haustið 2013, ríkti óvissa um stöðu byggðar á Bíldudal en vonir stóðu til uppbyggingar í fiskeldi. Sú hefur nú orðið raunin og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Því líður nú að lokum verkefnisins, sem er eitt af sjö verkefnum á vegum Byggðastofnunar undir heitinu „Brothættar byggðir“. Miðvikudaginn 18. maí, var haldinn íbúafundur á Bíldudal þar sem staða verkefnisins var metin og rætt um styrkveitingar og hvernig hægt sé að tryggja að verkefnið skili árangri til lengri tíma.
Lesa meira
Rætt um framtíðina í Grímsey

Lífróður Grímseyinga – framtíð byggðar rædd á íbúaþingi

Íbúar Grímseyjar eiga sér þá framtíðarsýn að byggð í eynni blómstri, með útgerð og ferðaþjónustu og vel hirtu umhverfi. Börnin í grunnskólanum telja einstakt að alast upp í Grímsey og eru ánægð með nálægð við náttúruna og samfélag sem er eins og ein fjölskylda.
Lesa meira
Frá íbúafundi í Hrísey

Hrísey er einstök og í því felast tækifæri

Til þess að efla byggð í Hrísey þarf að nýta betur mikla sérstöðu eyjarinnar, bæði til markaðssetningar og nýsköpunar, en líka til þess að laða að nýja íbúa. Mikilvægt er að stuðla að fjölbreytni í atvinnulífi í eynni auk þess að standa vörð um innviðina og alla grunnþjónustu.
Lesa meira
Verkefnislýsing fyrir Brothættar byggðir

Verkefnislýsing fyrir Brothættar byggðir

Nú má finna verkefnislýsingu fyrir verkefnið Brothættar byggðir á heimasíðu Byggðastofnunar. Verklýsingunni fylgja fjölmargir viðaukar þar sem ýmsir þættir verkefnisins eru nánar útfærðir.
Lesa meira
Hafnarsvæðið í Grímsey

Frestun íbúaþings í Grímsey

Ákveðið hefur verið að fresta íbúaþingi sem halda átti í Grímsey annað kvöld, eða föstudaginn 19. febrúar og laugardag, þann tuttugasta. Þessi ákvörðun var tekin í ljósi afleitrar veðurspár fyrir næstu daga. Óvíst er hvort hægt verður að fljúga út í Grímsey á morgun, föstudag og eftir það bendir spáin til þess að ekki verði hægt að fljúga til baka fyrr en jafnvel á þriðjudag.
Lesa meira
Frá íbúaþinginu - mynd KÞH.

Nýta sérstöðuna og styrkja innviði

Til að efla byggð við Öxarfjörð á að byggja á sérstöðu svæðisins, nýta sóknarfæri sem felast m.a. í matvælavinnslu, ferðaþjónustu og jarðhita og að standa vörð um grunnþjónustuna. Þetta var þátttakendum efst í huga, á íbúaþingi í Öxarfjarðarhéraði, sem haldið var í Lundi, helgina 16.-17. janúar.
Lesa meira
Íbúaþing fyrir Kópasker og nærsveitir

Íbúaþing fyrir Kópasker og nærsveitir

Íbúaþing fyrir fyrir íbúa á Sléttu, Kópaskeri, Núpasveit, Öxarfirði og Kelduhverfi verður haldið um helgina að Lundi.
Lesa meira
Vel mætt á íbúafund á Breiðdalsvík

Vel mætt á íbúafund á Breiðdalsvík

Hátt í 50 manns sóttu íbúafund verkefnisins „Breiðdælingar móta framtíðina“ á Breiðdalsvík mánudaginn 16. nóvember sl. Þar var rætt um framtíðarsýn og markmið og fram komu ýmsar hugmyndir að verkefnum. Mikil jákvæðni og samheldni einkenndi fundinn.
Lesa meira
Skaftárhreppur til framtíðar – fjörugar umræður á íbúafundi

Skaftárhreppur til framtíðar – fjörugar umræður á íbúafundi

Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri vegna verkefnisins Skaftárhreppur til framtíðar var haldinn miðvikudagskvöldið 4. nóvember sl. Fundinn sóttu um fimmtíu manns og ræddu framtíð samfélagsins af miklum áhuga fram eftir kvöldi.
Lesa meira
Brothættar byggðir, fyrsti fundur verkefnisstjórnar fyrir Kópasker og nágrenni

Brothættar byggðir, fyrsti fundur verkefnisstjórnar fyrir Kópasker og nágrenni

Fyrsti fundur í verkefnisstjórn Brothættra byggða fyrir Kópasker og nágrenni var haldinn á Kópaskeri miðvikudaginn 28. október sl. Við þetta tækifæri tók Silja Jóhannesdóttir verkefnisstjóri við verkefnisstjórn fyrir verkefnið í byggðarlaginu, en fyrir gegnir hún því starfi fyrir verkefnið Raufarhöfn og framtíðin, sem einnig er hluti Brothættra byggða.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389