Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2023, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. mars 2024.

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2023 er fyrsti ársreikningur stofnunarinnar sem er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn (e. accrual basis IPSAS, International Public Sector Accounting Standards, vísað til sem "IPSAS"). Hefur ársreikningur ársins 2022 verið leiðréttur til samanburðar eftir IPSAS staðlinum.

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðunum. 

Afkoma ársins var jákvæð um 703,5 milljónir króna á móti jákvæðri afkomu upp á 476 milljónir króna árið 2022.  Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 22,64%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.  Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni.  Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2023

  • Afkoma ársins var jákvæð um 703,5 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 22,64% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 1.243 milljónir króna eða 46% af vaxtatekjum, samanborið við 794 milljónir króna (34,4% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2022.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 623 milljónum króna samanborið við 558 milljónir árið 2022.
  • Eignir námu 25.336 milljónum króna og hafa hækkað um 1.144 milljónir frá árslokum 2022.  Þar af voru útlán 22.071 milljónir samanborið við 20.072 milljónir í árslok 2022.
  • Skuldir námu 20.637 milljónum króna og hækkuðu um 441 milljón á árinu 2023.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Ársreikningur 2023


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389