Fara í efni  

Fréttir

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2024

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2024
Skjáskot úr mælaborði

Byggðastofnun hefur fengið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) til að reikna út fasteignamat á sömu viðmiðunarfasteigninni um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2024 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem HMS reiknar og gildir frá 31. desember 2023. Útreikningar voru gerðir fyrir 103 matssvæði í 49 sveitarfélögum.

Nú er komin út skýrsla um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2024. Samhliða skýrslunni hefur mælaborð verið uppfært með nýjustu gögnum.

Fasteignamat
Heildarfasteignamat (húsmat og lóðarmat) viðmiðunareignar er að meðaltali 63,2 m.kr. en fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu fasteignin er. Fasteignamat viðmiðunareignar í greiningunni er hæst á höfuðborgarsvæðinu eða 111,3 m.kr. að meðaltali. Utan höfuðborgarsvæðisins er fasteignamat hæst á Akureyri, á Akranesi, í Keflavík og í Hveragerði. Lægsta meðalfasteignamat landshluta er á Vestfjörðum 37,0 m.kr. og á Austurlandi 38,1 m.kr.

Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hækkaði heildarfasteignamat íbúðareigna um 13,7% milli áranna 2023 og 2024. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignamats viðmiðunareignar frá 2023 til 2024 var á Seyðisfirði 46,4% en þar næst á Þingeyri 39,5%, í Höfnum 38,7% og á Patreksfirði 38,0%.

Fasteignagjöld
Til fasteignagjalda teljast fasteignaskattur, lóðarleiga, fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjöld. Sorpgjöld eru ekki höfð inni í samanburði á fasteignagjöldum að þessu sinni vegna þess hve mismunandi aðferðum sveitarfélögin hafa beitt í álagningu sorpgjalda eftir innleiðingu svokallaðra „hringrásarlaga“.

Meðaltal heildarfasteignagjalda (án sorpgjalda) fyrir viðmiðunareign er um 392 þ.kr. árið 2024. Hæsta meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar er á Suðurlandi 455 þ.kr. og Suðurnesjum 420 þ.kr. en lægsta meðaltal landshluta er á Vestfjörðum 348 þ.kr. Meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar hækkaði um 12,7% milli ára. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda viðmiðunareignar varð á Suðurnesjum eða að meðaltali 21,3% og þar næst á Austurlandi 18,4%.

Samspil fasteignagjalda og fasteignamats
Þó fasteignagjöld séu ekki í fullkomlega beinu flútti við fasteignamat eru nokkuð sterk línuleg tengsl milli heildarfasteignamats og heildarfasteignagjalda viðmiðunareignarinnar eins og sjá má á punktaritinu hér að neðan. Línan sem dregin er í gegnum punktana 103 er aðhvarfslína og matssvæði þar sem fasteignagjöld eru frábugðin öðrum stöðum með sambærilegt fasteignamat lenda þá langt fyrir ofan eða neðan línuna.

Nánari upplýsingar má sjá í skýrslunni Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2024.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389