Fara í efni  

Auglýsingar

Aflamark Byggðastofnunar – boð um samstarf

10. maí, 2024

Á grundvelli reglugerðar nr. 643/2016 auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á:

  • Tálknafirði í Tálknafjarðarhreppi – allt að 400 þorskígildistonn
  • Þingeyri í Ísafjarðabæ – allt að 500 þorskígildistonn
  • Suðureyri í Ísafjarðarbæ – allt að 500 þorskígildistonn
  • Drangsnesi í Kaldrananeshreppi – allt að 300 þorskígildistonn
  • Hólmavík í Strandabyggð – allt að 500 þorskígildistonn
  • Hrísey í Akureyrarbæ – allt að 350 þorskígildistonn
  • Grímsey í Akureyrarbæ – allt að 300 þorskígildistonn
  • Raufarhöfn í Norðurþingi – allt að 500 þorskígildistonn
  • Bakkafirði í Langanesbyggð – allt að 300 þorskígildistonn
  • Borgarfirði eystri í Múlaþingi – allt að 200 þorskígildistonn
  • Breiðdalsvík í Fjarðabyggð – allt að 400 þorskígildistonn

fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026, 2026/2027, 2027/2028, 2028/2029 og 2029/2030.

  •  Djúpavogi í Múlaþingi – allt að 350 þorskígildistonn

fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026 og 2026/2027.

Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:

  • hafi átt í alvarlegum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi eða ætla megi að samdráttur í greininni myndi skapa slíkan vanda
  • eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu
  • eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða

Í því skyni er stefnt að uppbygginu í sjávarútvegi sem:

  • skapar og viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum
  • stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma

Endanlegt val á samstarfaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:

  • trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi
  • fjölda heilsársstarfa
  • sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðalaginu
  • öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina
  • jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið
  • traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda

Magn aflaheimilda er með fyrirvara um úthlutun matvælaráðuneytisins til Aflamarks Byggðastofnunar ár hvert.

Umsóknum sem ekki falla að markmiðum verkefnisins verður hafnað. Hér er hægt að nálgast reglugerð nr. 643/2016 um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda samkvæmt 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða ásamt breytingu nr. 487/2024.

Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar í gegnum umsóknargátt á heimasíðu stofnunarinnar www.byggdastofnun.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 28. maí 2024.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Byggðastofnunar í gegnum netfangið aflamark@byggdastofnun.is og í síma 455-5400.

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389