Fara í efni  

Íbúakönnun landshlutanna 2020

Íbúakönnun landshlutanna fór fram á netinu í september og október 2020. Tilgangur hennar var að kanna hug íbúa til búsetuskilyrða, aðstæður á vinnumarkaði og afstöðu til nokkurra mikilvægra atriða, s.s hamingju og hvort íbúar séu á förum frá landshlutanum. Könnunin var send út á íslensku ensku og pólsku og alls fengust 10.253 svör. Skýrsla um könnunina kom út í ársbyrjun 2021.

Vífill Karlsson, Ph.D. í hagfræði hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, hafði yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd könnunarinnar, ásamt því að vinna úr niðurstöðum með Helgu Maríu Pétursdóttur hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri safnaði netföngum og mat stærð úrtaks.

Mælaborðinu sem sést hér fyrir neðan er skipt í þrjá flipa:
1) Spurningar, þar sem hægt er að velja spurningar í könnuninni og skoða niðurstöður eftir bakgrunni svarenda;
2) Þættir, þar sem stöðu og mikilvægi 40 búsetuþátta er raðað upp og hægt er að velja tiltekið svæði;
3) Svæði, þar sem einn búsetuþáttur er valinn og svæðum raðað upp eftir stöðu og mikilvægi þáttarins.

Smellið á "tableau" merkið neðst til vinstri í rammanum til að sjá mælaborðið stærra í sér glugga.

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389