Tálknafjörður
Töfrar Tálknafjarðar
Tálknafjörður hóf þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir haustið 2026 undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vesturbyggðar, Vestfjarðastofu og íbúa við Tálknafjörð. Markmið þess er að styrkja samfélagið til framtíðar, efla frumkvæði íbúa og skapa grundvöll fyrir fjölbreyttara atvinnulíf, öflugt mannlíf og aukin lífsgæði.
Verkefnið hófst með skipun verkefnisstjórnar og ráðningu verkefnisstjóra síðsumars 2026 ásamt því að viðhorfskönnun var lögð fyrir meðal íbúa. Formlegt samtal við íbúa hófst með íbúaþingi dagana 30.–31. október 2026. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að yfir 80% íbúa telji gott að búa á Tálknafirði. Á íbúaþinginu, þar sem yfir fjórðungur íbúa tók þátt, kom fram mikill áhugi á að efla samfélagið og skapa ný tækifæri til framtíðar. Samgöngur, atvinnuþróun, húsnæðismál, fjölskylduvænt samfélag og náttúra voru meðal helstu áherslumála.
Niðurstöður íbúaþingsins og íbúakönnunarinnar verða nýttar við gerð verkefnisáætlunar til fimm ára. Í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Töfra Tálknafjarðar, sem ætlað er að styðja við hugmyndir og verkefni íbúa.
Um byggðarlagið:
Landfræðileg afmörkun og náttúra
Tálknafjörður er einn af sunnanverðum fjörðum Vestfjarða og liggur milli Patreksfjarðar og Arnarfjarðar. Fjörðurinn er um 15 kílómetra langur og 4–5 kílómetra breiður við mynnið. Innsti hluti hans nefnist Hópið, þar sem Sveinseyri myndar skjólgóða höfn frá náttúrunnar hendi. Þéttbýlið stendur að mestu í landi Tungujarðanna norðan við Hópið.
Landfræðileg afmörkun verkefnisins nær til þorpsins og sveitabýlanna við fjörðinn. Svæðið tilheyrði áður Tálknafjarðarhreppi en er nú hluti af Vesturbyggð.
Náttúran er órjúfanlegur hluti af lífi Tálknfirðinga. Fjörðurinn er umlukinn fjöllum sem eru víða vel gróin og á undanförnum áratugum hefur umfangsmikil skógrækt aukið gróður og skjól í nágrenni þorpsins. Tálknafjörður er þekktur fyrir gróðursæld og veðursæld og þar er aðstaða til fjölbreyttrar útivistar í næsta nágrenni við heimilin. Meðal þekktra kennileita eru Pollurinn, náttúrulegir heitir pottar við ströndina, skógræktarsvæðin og gönguleiðir um fjöll og dali.
Saga og samfélag
Þótt byggð við Tálknafjörð eigi sér langa sögu er þorpið sjálft tiltölulega ungt. Uppbygging núverandi þéttbýlis hófst að marki á fimmta áratug 20. aldar með auknum umsvifum í sjávarútvegi og byggingu frystihúss. Tálknafjörður var viðurkenndur sem kauptún árið 1967.
Framtakssemi hefur lengi einkennt íbúa fjarðarins og sett svip sinn á atvinnulíf og samfélagsuppbyggingu, bæði á Tálknafirði og í nærliggjandi byggðarlögum. Þessi framkvæmdagleði hefur birst í uppbyggingu atvinnulífs, félagsstarfs og aðstöðu fyrir íbúa.
Í dag er Tálknafjörður lítið og náið samfélag þar sem stutt er milli heimila, skóla, leikskóla, sundlaugar, íþróttaaðstöðu og annarrar þjónustu. Sterk átthagatengsl, samhjálp og náin tengsl milli fólks einkenna mannlífið. Samfélagið hefur jafnframt orðið fjölbreyttara með tilkomu fólks af ólíkum uppruna sem hefur auðgað atvinnu- og félagslíf staðarins.
Þessum tengslum við fjörðinn, samfélagið og menninguna lýsti Davíð Davíðsson frá Sellátrum í ljóði sínu:
Það er fjörðurinn Tálkna svo fagur og hýr
sem er friðsæll við ólgandi röst.
Hann er svipbrigðaríkur og sífellt þó nýr
með sérkenni óbrigðul föst.
Staðbundin menning og starfandi hönd
styrkir og fegrar vor átthagabönd.
Framvindan helst meðan halur og víf
helga hvort öðru sitt líf.
Atvinnulíf
Sjávarútvegur og fiskvinnsla voru lengi helstu undirstöður atvinnulífs á Tálknafirði. Mikil þáttaskil urðu árið 2015 þegar fiskvinnsla Þórsbergs, eins stærsta atvinnurekanda staðarins, lokaði og fjöldi starfa tapaðist.
Fiskeldi hefur á síðari áratugum orðið mikilvæg atvinnugrein. Á Tálknafirði er löng hefð fyrir fiskeldi á landi, allt frá því að seiðaeldi hófst á Sveinseyri árið 1979. Á síðari árum hefur uppbygging fiskeldis á sunnanverðum Vestfjörðum skapað ný atvinnutækifæri.
Auk starfa í sjávarútvegi og fiskeldi eru störf í þjónustu, iðnaði, ferðaþjónustu og opinberri starfsemi. Margir íbúar sækja einnig vinnu til Patreksfjarðar og Bíldudals. Fjölbreyttara atvinnulíf, stuðningur við frumkvöðla og nýsköpun eru meðal mikilvægra viðfangsefna í framtíðarþróun byggðarlagsins.
Menning og sköpunarkraftur
Sterk tengsl við náttúruna, fólkið og staðinn sjálfan hafa lengi endurspeglast í sköpunarkrafti Tálknfirðinga. Þrátt fyrir smæð samfélagsins hefur fjöldi listamanna alist þar upp eða átt rætur sínar í firðinum.
Meðal þeirra eru leikararnir Gísli Halldórsson og Bjarni Snæbjörnsson, bræðurnir Gunnar Smári, Ólafur Sveinn og Árni Grétar Jóhannessynir, sem hafa starfað á sviði leiklistar, ljóðlistar og tónlistar, og myndlistarkonan Guðrún Einarsdóttir frá Sellátrum, sem nýtti náttúrulegan efnivið í verkum sínum. Þá má nefna barnabókahöfundinn Sigríði Etnu Marinósdóttur, systur hennar Kristrúnu, Dúddu, sem skapar listaverk úr ull, og myndlistarmanninn Valdimar Hannesson.
Sköpunargleðin nær einnig til yngstu kynslóðarinnar. Sumarið 2026 gaf hinn ellefu ára Ísak Elí Sæmundsson út sína fyrstu barnabók, Ævintýri Dalla Dollu.
Sköpunarkraftur Tálknfirðinga birtist þó ekki aðeins í listum heldur einnig í hugmyndaauðgi, framkvæmdagleði og öflugu félagsstarfi. Þessir eiginleikar eru mikilvægur styrkleiki samfélagsins og grunnur að áframhaldandi uppbyggingu þess.
Verkefnisstjóri Töfra Tálknafjarðar er Bergdís Þrastardóttir, bergdis@vestfirdir.is
Verkefnisstjórn skipa: Gunnlaugur Björn Jónsson og Nancy Rut Helgadóttir fulltrúar íbúa, Aðalsteinn Óskarsson fulltrúi Vestfjarðastofu, Jenný Lára Magnadóttir fulltrúi Vesturbyggðar, Heba Guðmundsdóttir, Kristján Þ. Halldórsson og Helga Harðardóttir fulltrúar Byggðastofnunar.
Texti: Bergdís Þrastardóttir
Hér má skoða gögn um verkefnið og framvindu þess:
Facebook síða verkefnisins

Mynd: Tálknafjörður í lok október 2026 / Kristján Þ. Halldórsson.
Uppfært 09.11.2026

