Fara í efni  

Vatnsveitustyrkir

Vatnsveitustyrkir

Heimilt er að greiða árlega framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna stofnkostnaðar við vatnsveitur á vegum eigenda lögbýla þar sem svo háttar til að hagkvæmara er að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004.

Heimild þessi er skv. reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 1538/2025, með síðari breytingum. Sjá reglugerðina hér: island.is / Stjórnartíðindi

Skilyrði

  • Þessi heimild nær til allra lögbýla í landinu þar sem landbúnaður er stundaður í þeim mæli að talist geti búrekstur eða þáttur í búrekstri.
  • Að umsækjandi hafi ÍSAT-númer í búnaðargjaldsskyldri búgrein.
  • Að umsækjandi hafi virðisaukanúmer.

Önnur ákvæði

  • Undanskildar eru þær jarðir og jarðarhlutar sem liggja innan skipulagðra þéttbýlissvæða sveitarfélaga.
  • Framlög eru ekki veitt vegna framkvæmda á lögbýlum sem hafa ekki verið setin í tvö ár eða lengur næst á undan framkvæmdarári, eða eru nytjuð frá öðrum lögbýlum nema byggingar á jörðinni séu nytjaðar til búrekstrar sem krefst aðgangs að vatni eða fyrir liggi heimild til stofnunar lögbýlis þar skv. jarðalögum, nr. 81/2004 með síðari breytingum.
  • Heimilt er að veita framlög, þar sem svo háttar til að vatnsveita þjónar bæði lögbýli og fasteignum sem ekki falla undir reglugerð nr. 1538/2025, í réttu hlutfalli við eignarhald.

Umsókn og fylgigögn

Umsóknum um styrk skal skila inn rafrænt til Byggðastofnunar fyrir 1. mars á framkvæmdaári. Sótt er um í þjónustugátt Byggðastofnunar. Opnað er fyrir umsóknir frá 1. febrúar ár hvert.

Þjóni vatnsveitan fleiri lögbýlum skal tilgreina um slíkt í umsókninni. Taki önnur lögbýli þátt í kostnaði vegna framkvæmdarinnar skal skila inn sér umsókn fyrir hvert lögbýli.

Með umsókn skal fylgja:

  • Mat úttektaraðila á þörf býlisins fyrir viðkomandi framkvæmd.
  • Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun.
  • Teikningar sé um byggingar að ræða.
  • Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. reglugerðar um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 1538/2025, sé uppfyllt.

Fyrir 1. maí skal Byggðastofnun hafa lokið yfirferð umsókna og leggja mat á hvort að þær uppfylli skilyrði þess að vera styrkhæfar. Umsækjendum er tilkynnt um niðurstöðu matsins og setur jafnframt þau skilyrði um tæknilegan frágang vatnsveitu sem hún telur nauðsynleg.

Ef ráðast þarf tafarlaust í vatnsveituframkvæmd, s.s. vegna þess að vatnsból þornar í náttúruhamförum eða af öðrum ástæðum, er umsókn metin gild ef hún berst fyrir 15. nóvember á framkvæmdaári, enda fylgi staðfesting úttektaraðila Byggðastofnunar á að framkvæmd hafi verið nauðsynleg og kostnaður ekki umfram það sem eðlilegt getur talist.

Úttekt á vatnsveituframkvæmd

Úttektir á framkvæmdum umsækjenda, staðfestar af úttektaraðila Byggðastofnunar, skulu berast stofnuninni fyrir 20. nóvember á framkvæmdarári. Framkvæmdum skal lokið þegar úttekt fer fram.

Eftirfarandi gögn skal úttektaraðili senda á postur@byggdastofnun.is með tilvísun í umsókn framkvæmdaraðila:

  • Staðfestingu á úttekt
  • Afrit af reikningum vegna framkvæmdarinnar

Úttektarmaður skal, með samanburði við lýsingu og/eða teikningar sem fylgdu umsókn, fullvissa sig um að verkið sé unnið í samræmi við það sem lýst var í umsókn og eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt.

Vatnsveituframkvæmdum telst lokið:

  • Er pípur hafa verið grafnar í jörðu og einangraðar eins og fyrir er mælt í verklýsingu.
  • Að gengið hefur verið frá vatnsbóli þannig að yfirborðsvatn komist ekki í það eða viðeigandi hreinsibúnaði hefur verið komið fyrir, sé þörf á að nota yfirborðsvatn.
⚠️ Athugið!

Ef óskað er eftir framlagi vegna framkvæmda sem ekki hafa verið teknar út fyrir 20. nóvember skal sótt um það að nýju vegna framkvæmda næsta árs. Sama gildir hafi framkvæmdum verið frestað milli ára.

Greiðsla framlags

Í lok hvers árs tekur Byggðastofnun ákvörðun um styrkveitingar vegna einstakra framkvæmda á því ári. Ákvarðanir Byggðastofnunar eru kæranlegar til ráðherra í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga.

Hámarksframlag vegna einstakra framkvæmda má nema allt að 44% stofnkostnaðar við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni, dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Þóknun fyrir úttekt á vatnsveituframkvæmdum telst jafnframt til stofnkostnaðar.

Heildarfjárhæð framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er að hámarki 31,6 m.kr. ár hvert.

Ef Byggðastofnun telur að framkvæmdarkostnaður eða einstakir kostnaðarliðir hafi farið fram úr því sem eðlilegt getur talist skal hún miða við lægri fjárhæð í ákvörðun sinni. Framkvæmdaraðila er tilkynnt um allar slíkar breytingar og gefinn hæfilegur frestur til að veita skýringar.

Byggðastofnun annast greiðslur framlaga til framkvæmdaraðila og eru framlög vegna framkvæmda á næstliðnu ári greidd eigi síðar en 15. febrúar ár hvert.

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389