Fara í efni  

Fréttir

Íbúaþing á Bakkafirði 30. – 31. mars

Helgina 30. – 31. mars er íbúum, fjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum samfélagsins við Bakkaflóa boðið til íbúaþings. Þingið markar upphaf að samtali við íbúa í verkefni Byggðastofnunar Brothættum byggðum. Verkefnið er samstarfsverkefni íbúa á Bakkafirði og nærsveita, Langanesbyggðar, Eyþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Byggðastofnunar. Fulltrúar þessara aðila skipa verkefnisstjórn.

Íbúaþingið er haldið til að vera verkefnisstjórninni og íbúum veganesti fyrir byggðaþróunarverkefni á Bakkafirði sem standa mun í allt að fimm ár og eru skilaboð og áherslur íbúa þungamiðja vinnunnar.

Þingið stendur í tvo daga og er ekki fyrirfram mótuð dagskrá heldur geta allir viðstaddir stungið upp á umræðuefnum sem síðan eru rædd í smærri hópum. Aðferðin kallast Opið rými, eða Open Space á ensku. Aðferðin á sér rúmlega 30 ára sögu og hefur gefist vel á íbúaþingum sem þessum. Umsjón með íbúaþinginu hefur Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI.

Dagskráin stendur frá kl. 11 til  kl. 16 á laugardeginum 30. mars og kl. 11 – 15, sunnudaginn 31. mars. Að þingi loknu er boðið upp á kaffiveitingar og meðan á þinginu stendur verður séð til þess að allir hafi nóg að bíta og brenna. Ekki er nauðsynlegt að vera alla helgina heldur er hægt að taka þátt í skemmri tíma. Íbúaþingið fer fram í skólahúsnæðinu á Bakkafirði.

Íbúar og aðrir sem tengjast Bakkafirði og bera hag byggðarlagsins fyrir brjósti eru hvattir til að velta fyrir sé umræðuefnum og fjölmenna til íbúaþings í lok mars.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389