Fara í efni  

Fréttir

Flestir íbúar dreifbýlis hyggja á áframhaldandi búsetu þar

Flestir íbúar dreifbýlis hyggja á áframhaldandi búsetu þar
Íbúar strjálbýlis almennt ánægðir með búsetu sína.

Byggðastofnun hóf á árinu 2019 viðamikla rannsókn á búsetuáformum landsmanna í samstarfi við innlendar og erlendar háskólastofnanir. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá greinargott yfirlit um búsetuþróun á Íslandi, orsakir hennar og afleiðingar. Starfið var leitt af Þóroddi Bjarnasyni prófessor við Háskólann á Akureyri. Fyrsta áfanga lauk 2019 og fjallaði hann um áform fólks sem býr í smærri bæjum og þorpum. Annar og þriðji áfangi voru sambærilegar kannanir, önnur meðal fólks sem býr í dreifbýli og hin í stærri þéttbýliskjörnum og á höfuðborgarsvæðinu.

Niðurstöður annars áfanga verkefnisins, um íbúa sveita og annars strjálbýlis á Íslandi, hafa nú verið birtar í skýrslu. Þar kemur meðal annars fram að um 80% íbúa dreifbýlis landsins eru ánægð með búsetu sína en karlar eru þó ekki jafn ánægðir og konur. Þá eru þeir sem eru 61 árs og eldri ekki jafn ánægðir og þeir sem yngri eru. Þá eru íbúar í strjálbýli á Vestfjörðum ekki eins ánægðir með búsetuna og þeir sem búa í dreifbýli annars staðar á landinu.

Meirihluti íbúa dreifbýlis á Íslandi telur ekki líklegt að þeir flytji burt í framtíðinni, hvorki tímabundið né fyrir fullt og allt. Bændur eru ólíklegri en þeir sem ekki eru bændur til þess að áforma flutninga úr sveitinni. Rúmlega þriðjungur bænda reiknar með því að afkomendur eða aðrir í fjölskyldunni taki við jörðinni þegar þeir hætta búskap.

Atvinnutækifæri eru mikilvægasta einstaka ástæða þess að svarendur segjast ætla að flytja búferlum en aðgengi að menningu og afþreyingu, heilbrigðisþjónustu, nálægð við börn eða stjúpbörn og erfiðar samgöngur skipta einnig verulegu máli. Af þeim sem segjast ætla að flytja á næstu tveimur til þremur árum reikna 27% með að flytja á höfuðborgarsvæðið, 25% ætla að flytja innan sama landshluta, 17% í annan landshluta og fimmtungur til annars lands.

Flestir íbúar dreifbýlisins eiga fjölskyldu og vini í sömu sveit en einnig er algengt að nánasta fjölskylda búi í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Þeir sem eiga flesta af nánustu fjölskyldu og vinum í sömu sveit eru ólíklegri til þess að ætla flytja burt en þeir sem eiga fáa eða enga nána ættingja eða vini í sömu sveit.

Yfirgnæfandi meirihluti svarenda segir að náttúran og samfélagið í sveitinni skipti sig persónulega miklu eða talsverðu máli. Þá skiptir húsið sem fólk býr í einnig máli. Fyrir áframhaldandi búsetu skipta hreint loft, kyrrð og ró og lítil umferð miklu máli. Þessir þættir skipta mun fleiri miklu máli en nálægð við ættingja eða vini, foreldra eða tengdaforeldra.

Mikilvægi fyrir áframhaldandi búsetu


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389