Fara í efni  

Fréttir

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar-júní 2018

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 24. ágúst 2018.

Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,73% en var 23,57% í lok árs 2017.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2018

  • Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,73% en skal að lágmarki vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki.  Þá skal stofnunin viðhalda 2,25% verndunarauka og 1,25% sveiflujöfnunarauka að auki sem hækkar í 1,75% frá 15. maí 2019
  • Hreinar vaxtatekjur voru 227,6 milljónir króna eða 44,4% af vaxtatekjum, samanborið við 214,1 milljónir króna (48,6% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2017.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 265,8 milljónum króna samanborið við 229,4 milljónir árið 2017.
  • Eignir námu 14.882 milljónum króna og hafa hækkað um 1.749 milljónir frá árslokum 2017.  Þar af voru útlán 12.078 milljónir samanborið við 10.464 milljónir í lok árs 2017.
  • Skuldir námu 11.812 milljónum króna og hækkuðu um 1.686 milljónir frá árslokum 2017.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2018

Tilkynning til kauphallar


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389