Fara í efni  

Fréttir

Styrkir til rannsókna á sviði byggðamála

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála.

Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.  

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.

Styrkir verða veittir til eins árs. Sjóðurinn hefur allt að 10 milljónir króna til úthlutunar. Samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn.

Rafrænt umsóknarform, reglur Byggðarannsóknasjóðs og starfsreglur stjórnar sjóðsins er að finna hér

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir.

Netfang: sigga@byggdastofnun.is. Sími 5317004 og 8697203.

Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti fimmtudaginn 14. mars 2019.

 


Til baka

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389