Fréttir
Byggðaráðstefnan 2025 verður 4. nóvember í Skjólbrekku í Mývatnssveit
Yfirskrift ráðstefnunnar og viðfangsefni er Félagslegur fjölbreytileiki samfélaga, jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?
Undanfarin ár hefur íbúum með erlent ríkisfang fjölgað verulega í öllum landshlutum, mismikið eftir svæðum. Er vöxtur samfélaga í jafnvægi? Eru áskoranir? Eða vannýtt sóknarfæri? Fram koma sjónarmið þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á þessu sviði sem og annarra sem vinna á vettvangi um stöðu og þróun byggða, sjá dagskrá!
Það er von skipuleggjenda að ráðstefnan verði vel sótt og verði til þess að auðga umræðu um búsetu og byggðaþróun. Ráðstefnan á erindi við sveitarstjórnarfólk, fulltrúa atvinnulífs, stefnumótendur og aðra sem starfa eða sinna rannsóknum á vettvangi byggðamála. Einnig verður hægt að fylgjast með í streymi.
Byggðaráðstefnur eru haldnar annað hvert ár á vegum Byggðastofnunar. Tilgangur þeirra er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Áherslur byggðaráðstefnu hafa verið á tiltekinn málaflokk hverju sinni, síðast var yfirskriftin „Búsetufrelsi?“ Upplýsingar um fyrri byggðaráðstefnur má sjá á vef Byggðastofnunar.
Að ráðstefnunni 2025 standa Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, í samvinnu við Þingeyjarsveit.
Við hlökkum til að sjá ykkur! Skráningarfrestur er til og með 27. október. Skráning hér!
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember