Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2015

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2015, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 17. mars 2016.

Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,56% en var 20,2% í lok árs 2014.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2015

  • Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,56% en skal að lágmarki vera 8%
  • Hreinar vaxtatekjur voru 454,8 milljónir króna eða 54,3% af vaxtatekjum, samanborið við 399,4 milljónir króna (49,1% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2014.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 392,6 milljónum króna samanborið við 387,1 milljónir árið 2014.
  • Eignir námu 14.417 milljónum króna og hafa hækkað um 499,8 milljónir frá árslokum 2014.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.308 milljónir.
  • Skuldir námu 11.666 milljónum króna og hækkuðu um 401 milljón á árinu.

Um ársreikninginn

Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna.  Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána, matsbreytingu hlutabréfa og sölu fullnustueigna. 

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 21,56% í lok tímabilsins.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfarm sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Með bréfi Fjármálaeftirlitsins dagsettu 1. mars 2016 var Byggðastofnun tilkynnt að FME hefði ákveðið að samanlögð krafa um eiginfjárauka sem Byggðastofnun bæri að viðhalda frá og með 1. janúar 2016 væri 1% sveiflujöfnunarauki sem taki gildi 12 mánuðum eftir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins.  Að auki ber Byggðastofnun að viðhalda 1% verndunarauka frá 1. janúar 2016 samkvæmt 84. gr. e laga um fjármálafyrirtæki, sbr. 84. gr. a sömu laga.  Verndunarauki samkvæmt nefndum lagaákvæðum hækkar í áföngum, fyrst í 1.75% hinn 1. júní 2016 og svo í 2.5% hinn 1. janúar 2017.  Hinni samanlögðu kröfu skal jafnframt viðhaldið á samstæðugrunni. Miðað við hækkun verndunaraukans 1. júní 2016 og 1. janúar 2017 og gildistöku sveiflujöfnunaraukans 1. mars 2017 verður hin samanlagða krafa að öllu óbreyttu 3,5%.

Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is

Ársreikningur Byggðastofnunar 2015

 

Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár

 

2015

2014

2013

2012

2011

 

Þús. kr.

Þús. kr.

Þús. kr.

Þús. kr.

Þús. kr.

Rekstrarreikningur

         

Vaxtatekjur................................................

837.787

813.793

998.367

1.239.328

1.325.644

Vaxtagjöld..................................................

382.996

414.371

561.002

645.570

685.712

Hreinar vaxtatekjur.....................................

454.791

399.422

437.365

593.757

639.933

Rekstrartekjur............................................

385.120

448.940

559.846

193.296

319.051

Hreinar rekstrartekjur.................................

839.911

848.362

997.211

787.054

958.983

Rekstrargjöld............................................

741.021

499.145

808.294

939.827

1.194.695

Hagnaður (-tap) ársins............................

98.891

349.217

188.917

-152.773

-235.712

           

Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár

         

Framlög í afskriftarreikning útlána o.fl. .........

61.012

-117.243

50.960

444.940

710.772

           

Efnahagsreikningur

31.12.2015

31.12.2014

31.12.2013

31.12.2012

31.12.2011

Eignir

         

Sjóður og kröfur á lánastofnanir...................

3.081.232

2.062.688

2.421.208

2.213.327

2.464.230

Útlán..........................................................

10.307.529

10.821.632

11.570.492

13.421.549

14.214.991

Veltuhlutabréf.............................................

372.768

388.993

809.599

763.001

881.276

Hlutir í hlutdeildarfélögum............................

574.736

513.402

Aðrar eignir................................................

80.511

130.216

71.009

340.102

89.266

Eignir samtals..........................................

14.416.775

13.916.931

14.872.307

16.737.980

17.649.763

           

Skuldir og eigið fé

         

Lántökur.....................................................

11.495.402

11.161.775

12.458.421

14.549.688

17.137.891

Aðrar skuldir...............................................

170.826

103.500

111.448

74.769

245.578

Skuldir samtals........................................

11.666.228

11.265.275

12.569.868

14.624.458

17.383.468

           

Eigið fé.......................................................

2.750.547

2.651.656

2.302.439

2.113.522

266.295

Skuldir og eigið fé samtals......................

14.416.775

13.916.931

14.872.307

16.737.980

17.649.763

           

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings........

0

18.807

22.552

216.398

218.330

           

Sjóðstreymi

2015

2014

2013

2012

2011

Handbært fé (-til) frá rekstri.........................

207.394

556.712

787.953

638.877

555.887

Fjárfestingarhreyfingar................................

373.684

569.609

324.400

617.252

375.980

Fjármögnunarhreyfingar..............................

437.466

-1.484.841

-904.473

-1.507.031

-343.495

Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé...............

1.018.544

-358.520

207.880

-250.903

588.371

Handbært fé í ársbyrjun...............................

2.062.688

2.421.208

2.213.327

2.464.230

1.875.859

Handbært fé í árslok................................

3.081.232

2.062.688

2.421.208

2.213.327

2.464.230

           

Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði

21,56%

20,20%

16,12%

12,55%

1,34%


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389