Fara í efni  

Fréttir

Mikil þátttaka Íslands í verkefnum innan Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 (NPP)

Alls hafa borist 71 umsóknir um aðalverkefni á þeim 6 umsóknarfrestum sem liðnir eru. Samtals hafa borist liðlega 53 umsóknir um forverkefni og þar af verið samþykkt 26 og 3 bíða afgreiðslu. Forverkefni hafa þann megin tilgang að vinna að gerð aðalumsókna, leita samstarfsaðila og frágangi mótfjármögnunar. Ísland er nú þátttakandi í 17 aðalverkefnum innan Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 af 31 aðalverkefni eða liðlega helmingi allra aðalverkefna.

6. umsóknarfrestur
Umsóknir á sjötta umsóknarfresti Norðurslóðaáætlunar 14. október sl.  voru 7 talsins. Nú er að hefjast matsferli umsókna en á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunar 14.-15. desember 2010 verða teknar ákvarðanir um ný verkefni.

Næsti umsóknarfrestur
Sjöundi umsóknarfrestur opnar 1. Janúar 2011.  Ítarlegar upplýsingar um áherslur verða gefnar út í desember 2010 en um verður að ræða stefnumiðað kall.

Forverkefni
Vakin er athygli á að í gangi eru tvö köll eftir forverkefnum, sjá frekari upplýsingar hér.

Yfirlit yfir þau 17 aðalverkefni sem ísland tekur þátt í.
Með því að smella á heiti verkefnisins má komast inn á heimasíðu þess.

Sustainable Transport in Rural Tourism Areas – Trans Tourism. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Skotlands og Íslands. Íslenski þátttakandinn er Þróunarstofa Austurlands í samstarfi við samgöngu- og ferðaþjónustuaðila.

Tourist navigation through Mobile Phones – TN Mobile. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Norður Írlands, Írlands og Íslands. Íslenski þátttakandinn er Rannsóknarsetur verslunarinnar, Bifröst í samstarfi við þjónustuaðila á sviðum verslunar, ferðaþjónustu og fjarskipta.

Rural Innovation and Business Systems– RIBS Samstarfsverkefni Skotlands, Svíþjóðar, Finnlands, Írlands og Íslands.  Íslenski þátttakandinn í verkefninu eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi – SSV ráðgjöf og Vaxtarsamningur Vesturlands.

RoadexNetwork Implementing Accessibility. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands, Írlands, Svíþjóðar, Íslands, Grænlands, Noregs og Kanada. Íslenskur þátttakandi er Vegagerð ríkisins í samstarfi  við verkfræðistofur og fleiri.

New Plants for the Northern Periphery Market. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Íslands. Íslensku þátttakendurnir eru Landbúnaðarháskólinn Hvanneyri  í samstarfi við garðyrkjustöðvar og fyrirtæki.

Rural Transport Solutions. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Íslands. Íslensku þátttakendurnir eru Þróunarstofa austurlands og Fjarðabyggð í samstarfi við Vegagerðina.

The THING Project – THing sites International Networking Group. Samstarfsverkefni Noregs, Íslands, Skotlands og Færeyja.  Íslenski þátttakandinn er Þjóðgarðurinn Þingvöllum í samstarfi við tengda aðila.

SMALLEST –Solutions for Microgeneration to Allow Energy Saving Technology. Samstarfsverkefni Skotlands, Finnlands, Norður Írlands, Færeyja, Svíþjóðar, Íslands og Grænlands. Íslenski þátttakandinn er Þróunarstofa austurlands í tengslum við fjölmarka aðila innan orkugeirans.

Retail in Rural Regions. Samstarfsverkefni Íslands, Írlands, Færeyja, og Skotlands þar sem Rannsóknarsetur verslunarinnar Háskólanum Bifröst er þátttakandi í samstarfi við verslanir, Samtök verslunar, sveitarfélög og atvinnuþróunarfélög.

The Sea as Our Neighbour: Sustainable Adaption to Climate Change in Coastal Communities and Habitats on Europe‘s Northern Periphery – Coast Adapt. Samstarfsverkefni Íslands, Norður Írlands, Írlands, Skotlands og Noregs þar sem Háskóli Íslands, Sveitarfélagið Árborg og Mýrdalshreppur eru þátttakendur en meðal tengdra aðila eru Siglingastofnun, Veðurstofa Íslands, Samtök sveitarfélaga, Skipulagsstofnun og fleiri.

North Hunt, Sustainable Hunting Tourism. Samstarfsverkefni  Íslands, Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknasetur ferðaþjónustunnar, Veiðistjórnarsvið Umhverfisstofnunar.

NEED, Northern Environment Education Development. Samstarfsverkefni  Íslands, Finlands, Noregs og Írlands. Íslenskir þáttakendur eru Fræðasetur Háskóla Íslands, Höfn Hornafirði, Háskólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarfélag Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveitarfélögin Hornafjörður, Skaftárhreppur, Fljótsdalshérað og Norðurþing.

PELLETime – Solutions for competitive pellet production in medium size enterprises. Samstarfsverkefni  Íslands, Finnlands og Skotlands. Íslenskir þátttakendur eru Héraðsskógar, Austurlandsskógar og Skógrækt ríkisins

Economuseum Northern Europe. Samstarfsverkefni Íslands, Færeyja, Norður Írlands, Írlands, Noregs og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Fruman Nýheimum, Höfn Hornafirði og Fræðslunet Austurlands.

Co-Safe,  The cooperation for safety in sparsely populated areas. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Grænlands. Íslenskir þáttakendur eru FSA Háskólasjúkrahús, Akureyri og Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við fjölmarga innlenda aðila.

OLEII,  Our Life as Elderly- implementation. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Færeyja. Íslenskir þátttakendur eru Akureyrarbær, Hafnarfjarðarbær og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.

Northcharr,  Sustainable Aquaculture of Arctic charr. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar og Noregs. Íslenskir þátttakendur eru Hólalax ehf, Rifós ehf, Íslandsbleikja ehf, Silfurstjarnan ehf, Klausturbleikja ehf, Skagafjarðarveitur, FISK-Seafood, Akvaplan-Niva  og Matís.

Starfssvæði og tengiliður áætlunarinnar
Norðurslóðaáætlun 2007-2013  nær landfræðilega yfir mjög víðfeðmt svæði en þátttökulönd eru Evrópusambandslöndin,  Skotland, Norður Írland, Svíþjóð, Finnland og Írland auk Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja.   Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu Byggðastofnunar og Norðurslóðaáætlunar

Tengiliður áætlunarinnar er Byggðastofnun,  Þórarinn Sólmundarson thorarinn@byggdastofnun.is


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389