Fara í efni  

Fréttir

Sterkur Stöðvarfjörður - gott samfélag og fjölbreytt tækifæri

Sterkur Stöðvarfjörður - gott samfélag og fjölbreytt tækifæri
Íbúaþing á Stöðvarfirði

Stöðvarfjörður hefur alla möguleika á að eflast sem ferðamannastaður og menningar- og nýsköpunarbær. Hægt er að styrkja byggðina með því að nýta tækifæri á sem flestum sviðum og byggja á því sem þegar er til staðar. Leggja ætti áherslu á góða aðstöðu til útivistar og fjölskyldusamveru og mikilvægt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði.

Þetta eru meginskilaboð íbúaþings sem haldið var á Stöðvarfirði, helgina 5. – 6. mars. Með því hófst þátttaka Stöðvarfjarðar í verkefninu „Brothættar byggðir“ og er þetta þrettánda byggðarlagið þar sem unnið er eftir þessu verklagi Byggðastofnunar.  Vel var mætt til þings í blíðviðri, en um 60 manns á breiðum aldri tóku þátt.

Það málefni sem varð efst í forgangsröðun þátttakenda er að nýta svokallaðan Bala betur og búa þar til fjölskylduvænt og aðlaðandi útivistarsvæði, t.d. með fjölbreyttum leiktækjum, bekkjum og skjólveggjum. Göngustígar ættu einnig að vera forgangsatriði, m.a. að tengja saman svæði til útivistar með góðum gönguleiðum og leggja áfram áherslu á skógrækt.

Það vantar íbúðarhúsnæði á Stöðvarfirði og sagt var: „Hindra að við verðum sumarbústaðabyggð!“. Varðandi atvinnuhúsnæði, var m.a. vísað til Sköpunarmiðstöðvarinnar og fleiri staða. Sköpunarmiðstöðin var stofnuð árið 2011 í aflögðu frystihúsi.

Horft er til margvíslegrar atvinnusköpunar, t.d. framleiðslufyrirtækja, þ.m.t. matvælaframleiðslu og kallað var eftir öflugri nettenginu vegna fjarvinnu. Stöðfirðingar sjá aukin tækifæri í ferðaþjónustu, m.a. með góðu tjaldsvæði, fjölbreyttri afþreyingu og kraftmikilli markaðssetningu. Áhugi er á iðnaðareldhúsi sem nýst gæti fólki í eigin matvælaframleiðslu og rædd voru tækifæri í safnamálum. Stungið var upp á að á Stöðvarfirði verði miðstöð fornleifarannsókna á Austurlandi, en fornleifarannsóknir í Stöð benda til þess að saga landnáms sé eldri en hingað til hefur verið talið.

Auk góðra göngustíga dreymir Stöðfirðinga um fleiri lífsgæði sem íbúar og gestir geti notið. Þar má nefna lengri opnunartíma sundlaugar og að koma upp sána á „Öldunni“ sem er vinsælt svæði fyrir sjósund. Þá er áhugi á að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar og bæta almenningssamgöngur og miðla upplýsingum um þær, m.a. vegna sóknar barna á íþróttaæfingar annars staðar.

Kallað var eftir úrbótum á Suðurfjarðarvegi og að gerð verði göng milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.

Fram komu óskir um að bæta ýmsa þjónustu, t.d. hraðbanka og koma upp aðstöðu fyrir fagfólk sem kemur í skemmri tíma, s.s. sjúkraþjálfarar, hársnyrtar og fleiri.

Spurningunni: „Hvað eigum við?“ var varpað fram á þinginu. Þar kom í ljós að af nægu er að taka. Á Stöðvarfirði eru einstakar náttúruperlur, margvíslegir innviðir, mannauður og góður andi meðal bæjarbúa. Fram kom að Stöðfirðingar taka vel á móti nýju fólki.

Þetta er sú auðlegð sem unnið verður með áfram í verkefninu sem á þinginu hlaut heitið „Sterkur Stöðvarfjörður“.

Að verkefninu standa, auk Byggðastofnunar, sveitarfélagið Fjarðabyggð, SSA og Austurbrú og síðast en ekki síst íbúar á Stöðvarfirði og er verkefnisstjórn skipuð fulltrúum þessara aðila. Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri, Valborg Ösp Á. Warén, sem tekur til starfa í sumar og flytur þá til Stöðvarfjarðar.

Virk þátttaka íbúa er einn af hornsteinum verkefnisins „Brothættar byggðir“ og mun verkefnisáætlun til allt að fjögurra ára, byggja á skilaboðum þingsins, en því stýrði Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389