Fara í efni  

Fréttir

Byggðaáætlun (C.1.) 170 milljónir til fjórtán verkefna til að efla byggðir landsins

Byggðaáætlun (C.1.) 170 milljónir til fjórtán verkefna til að efla byggðir landsins
Haust á Djúpavogi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán fjölbreyttra verkefna til að efla viðkvæmar byggðir landsins. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun (aðgerð C.1. – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða) en alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 m.kr. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar.

Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun ráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar.

Verkefni sem hlutu styrk eru:

Sjálfbær ferðaþjónusta í Dölum

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
  • Styrkupphæð: 9 m.kr.

Verkefnið er þríþætt. Í fyrsta lagi er um að ræða markaðsherferð fyrir Dalina sem áfangastað sem standa mun yfir í eitt ár. Í öðru lagi verður unnið náið með ferðaþjónum í gegnum vinnustofur, hóphandleiðslu og einstaklingsráðgjöf til að aðstoða þá í markvissri markaðssetningu. Í þriðja lagi er um að ræða mótun staðbundinnar stefnu í ferðaþjónustu með hagaðilum, með áherslu á nærandi ferðaþjónustu.

Búseta og samfélag í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
  • Styrkupphæð: 11,5 m.kr.

Verkefnið felst í heildstæðri greiningu á forsendum búsetu og byggðafestu í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ, skólahverfi Lýsuhólsskóla. Unnin verður greining, sviðsmyndavinna og raunhæfar tillögur að leiðum til að efla íbúabyggð, fjölskyldubúsetu og samfélagsinnviði.

Nytjajurtir til nýsköpunar

  • Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
  • Styrkupphæð: 9 m.kr.

Markmiðið er að byggja upp sjálfbæra ræktun burnirótar og annarra heilsubótarplantna á Vestfjörðum. Burnirót er á verndarlista vegna ágengrar nýtingar og eingöngu er heimilt að selja unnar afurðir úr ræktun. Ræktun burnirótar skapar nýja verðmæta tegund landbúnaðar með betri landnotkun og styrkir byggðafestu til langtíma. 

Matarkista Breiðafjarðar. Matvælasetur í Króksfjarðarnesi

  • Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
  • Styrkupphæð: 20 m.kr.

Verkefnið felst í uppbyggingu matvælaseturs á Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi til að styðja við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu með framleiðslu „Beint frá býli“. Setrið mun bjóða upp á vottaða framleiðsluaðstöðu, framleiðslutæki og vinnslurými fyrir bændur og frumkvöðla til þróunar og framleiðslu á frum- og lokaafurðum í atvinnuskyni, s.s. landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum skelfisk, þangs og þara.

Þróunarfélag Króksfjarðarness. Uppbygging atvinnu, þjónustu og íbúðarbyggðar á Króksfjarðarnesi

  • Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
  • Styrkupphæð: 11 m.kr.

Verkefnið snýr að því að fjármagna þróunarfélag sem hefur það markmið að markaðsetja Króksfjarðarnes sem ákjósanlegan fjárfestingarkost með samningum við uppbyggingaraðila. Króksfjarðarnes er anddyri Vestfjarða og svæði með gífurleg tækifæri til framtíðaruppbyggingar. Í kringum Króksfjarðarnes er að finna ónýttan jarðvarma sem getur nýst til margskonar atvinnustarfsemi í ferðþjónustu, landbúnaði og eldi. 

Kuklið – þróun og efling frumkvöðlaseturs matvæla á Ströndum

  • Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
  • Styrkupphæð: 16 m.kr.

Verkefnið felst í að efla og þróa frumkvöðlasetrið Kuklið á Ströndum á þriggja ára tímabili með ráðningu verkefnastjóra sem hefur það hlutverk að virkja og móta starfsemi setursins. Byggt er á innviðum sem hafa verið fjármagnaðir áður og lögð áhersla á að styðja við matvælafrumkvöðla, styrkja nýsköpunarumhverfi Stranda og skapa forsendur fyrir sjálfbæran rekstur til framtíðar.

Lýsistankar á Raufarhöfn

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
  • Styrkupphæð: 8 m.kr.

Framhaldsstyrkur til að ganga frá þaki og setja upp merkingar sem eru forsenda þess að tankarnir verði fullnægjandi, öruggir og tilbúnir fyrir notkun í menningar-, lista- og ferðaþjónustu.

Ráðhúsið á Raufarhöfn – atvinnu- og samfélagssetur

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
  • Styrkupphæð: 10 m.kr.

Framhaldsstyrkur til að skapa aðstöðu til fjölbreyttari atvinnustarfsemi á staðnum, laða að frumkvöðla og nema, efla menntunarstig þorpsins og styrkja stoðir þess sem fyrir er. Ætlunin er ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa í atvinnu- og samfélagssetrinu.

Vaxtarplan fyrir Norðausturhornið – innviðir og aukin verðmætasköpun 

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
  • Styrkupphæð: 20 m.kr.

Verkefnið styður við uppbyggingu á norðausturhorninu með því að greina helstu tækifæri, móta skýra framtíðarsýn fyrir innviðaþróun og aukna verðmætasköpun með nýjum atvinnutækifærum. Verkefnið fylgir eftir nýlegu samkomulagi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði við Landsnet og Rarik um aukna afhendingargetu og afhendingaröryggi raforku á svæðinu. 

Stöðvarrými – samvinnurými á Stöðvarfirði

  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA)
  • Styrkupphæð: 15 m.kr.

Markmiðið er að setja upp samvinnurými á Stöðvarfirði. Þar með fjölgar tækifærum til fjölbreyttrar atvinnustarfsemi á svæðinu, starfa án staðsetningar og eflingar menntastigs byggðanna með aðstöðu til fjarnáms. Á Stöðvarfirði er búið að teikna upp um 98 fermetra  rými á neðri hæð í Sköpunarmiðstöðinni.

Vetrarferðaþjónusta á Seyðisfirði

  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA)
  • Styrkupphæð: 13 m.kr.

Markmiðið er að styrkja stoðir vetrarferðaþjónustu á Seyðisfirði með stofnun ferðaþjónustuklasa. Unnið með ferðaþjónustuaðilum að því að tryggja grundvöll ferðaþjónustu á svæðinu og gera hana að heilsársatvinnugrein. Horft sérstaklega til þess að tengja ferðaþjónustuna skíðasvæðinu í Stafdal, til fjölbreyttrar afþreyingar og veru auk fjölbreyttari nýtingarmöguleika svæðisins og tengingu við nýjan hring Bjólfs. 

Söguslóðir Suðurlands

  • Styrkþegi: Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
  • Styrkupphæð: 6,5 m.kr.

Verkefnið felst í þróun heildstæðrar sögutengdrar ferðaleiðar til að styrkja atvinnulíf í dreifðum byggðum með því að lengja dvöl gesta, fækka dagsferðum og auka staðbundna verðmætasköpun. Leiðin verður sett fram á vef og stafrænu korti og byggir á kortlagningu og varðveislu sagna og söguslóða sem nýtast til langs tíma í þróun ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingar í heimabyggð.

Eldfjallaleiðin – markaðssetning og miðlun

  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga Suðurnesjum (SSS)
  • Styrkupphæð: 4,5 m.kr.

Eldfjallaleiðin er samstarfsverkefni Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands sem miðar að því að miðla þekkingu um eldvirkni, áhrif hennar á náttúru og samfélög og skapa virðisaukandi tækifæri í ferðaþjónustu. Ferðaleiðin var þróuð af íbúum og ferðaþjónstuaðilum. Styrkur verður nýttur til að fjármagna markaðssetningu, samræmda framsetningu og þróun verkfæra sem styðja ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög og gesti með aðlaðandi, jákvæðri og uppbyggilegri miðlun.

Grindavík – saman í sókn 

  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS)
  • Styrkupphæð: 16,5 m.kr.

Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í uppbyggingu samfélags og atvinnulífs í kjölfar hamfara. Með samstarfi, þjálfun, markaðssetningu og virkni samfélagsins á að stuðla að sjálfbærri endurreisn, seiglu og framtíðarsýn. Verkefnið byggir á reynslu og árangri fyrri áfanga og miðar að því að styrkja samstöðu, auka þátttöku og efla jákvæða ímynd bæjarins.

Frétt af vef Stjórnarráðsins


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389