Fara í efni  

Fréttir

Fjölmörg frumkvæðisverkefni styrkja samfélagið í Dalabyggð

Fjölmörg frumkvæðisverkefni styrkja samfélagið í Dalabyggð
Styrkhafar á Nýp. Mynd: Sigursteinn Sigurðsson

Föstudaginn 20. febrúar var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs í fimmta sinn. Viðburðurinn var haldinn að Nýp á Skarðsströnd. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir hvers kyns samfélagseflandi verkefni, þar með talið nýsköpun í Dalabyggð.

Til úthlutunar voru 20.825.000 krónur og fengu 29 verkefni styrk. Fjölbreytni umsókna eykst frá ári til árs og verkefnin bera hugmyndaauðgi og framtakssemi Dalamanna vitni. Verkefni sem styrkt hafa verið á undanförnum árum hafa glætt mannlíf og menningarlíf í Dalabyggð og verkefnin í ár standa sannarlega fyrir sínu.

Tvö verkefni sem hlutu styrk voru kynnt á úthlutunarhófinu

Tveir styrkþegar héldu kynningar á sínum verkefnum á úthlutunarhófinu. Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir sagði frá verkefni um sölvatekju við Ytri-Fagradal og samstarfsverkefni hennar við Fine Foods Íslandica um þróun á framleiðsluferlum til að nýta þessa auðlind betur í afurðarframleiðslu. Ásmundur Einar Daðason sagði síðan frá alþjóðlegu samstarfsverkefni sem tengir Ísland og Mongolíu. Ýmis samstarfsverkefni hafa sprottið upp úr þessari vegferð og er eitt af þeim verkefni í Dölum, sem snýr að því að móta og prófa þátttökumiðað fyrirkomulag í ferðaþjónustu þar sem bændur geta boðið fólki heim og ferðamenn fá að taka þátt í daglegum störfum, í stað þess að vera áhorfendur.

Mynd af gestum í sal tók Þóra Sigurðardóttir og mynd af hópnum utandyra tók Sigursteinn Sigurðsson.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2026:

  • D&D í Dölunum Atli Freyr Guðmundsson 150.000 kr.
  • Geitagræjur Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir 200.000 kr.
  • Prjónakaffi Guðrún Jóhannsdóttir 200.000 kr.
  • Jólamarkaður Jóhanna Lind Brynjólfsdóttir 200.000 kr.
  • Art Exhibition Pietro Porcu og Nicole Salteri 250.000 kr.
  • VALL-EY Atli Freyr Guðmundsson 250.000 kr.
  • Sólarsölin Halla Steinólfs 300.000 kr.
  • La Sagra Pietro Porcu og Nicole Salteri 350.000 kr.
  • Hestatómstundir - búnaðarkaup Hestamannafélagið Glaður 400.000 kr.
  • Er líða fer að jólum Jón Egill Jóhannsson 400.000 kr.
  • Sveit í sveit Skátafélagið Stígandi 400.000 kr.
  • Dalamey handverk Sigríður Jóna Eggertsdóttir 450.000 kr.
  • Colors of fjords Fitore Berisha og Juan Cerezales Tisnes 500.000 kr.
  • Myndir sem selja Benedikt Jóhannesson 500.000 kr.
  • Listviðburðir í Dalíu D9 ehf 600.000 kr.
  • Hiking Viking - Gönguferðir frá Eiríksstöðum History up close ehf 650.000 kr.
  • Brekkuskógur - útivistarperla við Búðardal Skógræktarfélag Dalasýslu 700.000 kr.
  • Flygill fyrir Dalina Sigurbjörg I. Kristínardóttir o.fl. 750.000 kr.
  • Dalahvítlaukur Svarthamar vestur ehf 800.000 kr.
  • Dalapeysan - og fylgihlutir Handverksfélagið Bolli 850.000 kr.
  • Endurnýting ullar - Vöruþróun á vörum Rauðbarði ehf 900.000 kr.
  • Grafarlaug - skjól og fegrun Ungmennafélagið Æskan 925.000 kr.
  • Mini-gólf braut í Búðardal Fremri fasteignir ehf 1.000.000 kr.
  • Túngarður - ræktun og framleiðsla tága úr víði Katrín Dröfn Guðmundsdóttir og Sveinbjörn Júlíus Tryggvason 1.100.000 kr.
  • Dagverðarnes - áfangastaður úr alfararleið Hollvinafélag Dagverðarneskirkju 1.100.000 kr.
  • Daglegt líf og búskapur í Dölum – Prófun á þátttökumiðaðri ferðaþjónustu Flora ehf 1.200.000 kr.
  • Bambagarður Caroline Baare Schmidt 1.500.000 kr.
  • Auðlind bújarða Anna Berglind og Ólafur Bragi 2.000.000 kr.
  • Vinnslubúnaður fyrir bláskel Birgisás 2.200.000 kr.

Verkefnisstjóri, styrkhafar og aðrir gestir við afhendingu styrkjanna á Nýp. Myndina tók Þóra Sigurðardóttir

 

Styrkhafar á Nýp, myndina tók Sigursteinn Sigurðsson


 

Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389