Fréttir
Frá áskorunum til aðgerða - leiðarvísir
Leiðarvísirinn Frá áskorunum til aðgerða er nú kominn út.
Markmið þessa leiðarvísis er að styðja sveitarfélög við mótun og innleiðingu aðgerða til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðarvísirinn sameinar einföld skref og verkfæri sem gera sveitarfélögum kleift að hefja vinnuna óháð stærð, umfangi eða sérhæfðri þekkingu.
Þessi fyrsta útgáfa leiðarvísisins er afrakstur aðgerðar C.10 í núgildandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 og var unninn á grundvelli reynslu og niðurstaðna tilraunaverkefna sem fóru fram í fimm íslenskum sveitarfélögum á árunum 2022–2024. Aðgerðin var samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Reynslan úr vinnunni var grundvöllur þess verklags sem hér er sett fram og tryggir að leiðarvísirinn byggi á raunverulegum aðstæðum, þörfum og áskorunum sveitarfélaga.
Leiðarvísirinn getur nýst stjórnendum sveitarfélaga sem koma að stefnumótun, skipulagsgerð, þjónustu og daglegri ákvarðanatöku, sem og kjörnum fulltrúum sem vilja móta skýra stefnu og áætlanir í aðlögun að loftslagsbreytingum. Hann er jafnframt gagnlegur fyrir þá sem styðja við framkvæmd ferlisins, svo sem starfsfólk sveitarfélaganna, atvinnurekendur á svæðinu, sérfræðinga innan stjórnsýslunnar og samstarfsaðila sveitarfélaga.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember