Fara í efni  

Fréttir

Tvíeggjað sverð. Leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri hefur lokið rannsókn og birt skýrslu um leka óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins. Rannsóknin var styrkt af Byggðarannsóknasjóði vorið 2025 og unnin af Sigríði Bjarnadóttur og Hjalta Jóhannessyni, sérfræðingum RHA.

Rannsóknarverkefnið fólst í að kortleggja og greina tilvik þar sem óstaðbundin störf hafa flust frá landsbyggðunum til höfuðborgarsvæðis á síðustu fimm árum og rýna orsakir og afleiðingar slíks „leka“. Rannsóknin byggir á stuttri könnun sem náði til opinberra stofnana og fyrirtækja með starfsstöðvar í landsbyggðunum sem og ráðuneyta. Bæði var leitað að (1) tilfellum þar sem ráðið er í starf „úti á landi“ en það endar á höfuðborgarvæðinu og (2) tilfellum þar sem starfsmaður flytur suður og tekur starfið með sér (í fjarvinnu eða staðbundið í nýrri starfsstöð).

Unnið var með 90 svör sem jafngildir um 55% svarhlutfalli. Að auki voru tekin viðtöl við sex aðila frá fimm stofnunum eða fyrirtækjum sem höfðu reynslu af tilflutningi óstaðbundinna starfa.

Í skýrslunni kemur fram að helstu rannsóknarniðurstöður eru þær að af þeim starfsstöðvum sem töldu fjarvinnu mögulega þá staðfestu 29% þeirra að tilflutningur starfa til höfuðborgarsvæðis hefði átt sér stað síðustu 5 ár. Af þeim sem gátu metið fjölda starfa nam flutningurinn samtals 38,5 störfum á tímabilinu (að jafnaði 7,7 störf á ári) og voru það einkum sérfræðistörf.

Orsakir flutninga á störfum úr landsbyggðunum til höfuðborgarsvæðis eru fyrst og fremst búsetutengdar. Fólk flytur suður og tekur starfið með sér eða það reynist erfitt að manna störf á staðnum (hæfir umsækjendur sækja ekki um eða umsækjendur vilja ekki flytja á staðinn til að sinna starfinu á starfsstöð þar). Áhrifin geta verið mikil vegna þessa þar sem jafnvel fá störf geta vegið þungt á fámennum stöðum og dregið úr getu svæða til að halda í háskólamenntaða íbúa.

Niðurstöður rannsóknarinnar varpa þannig ljósi á tilhneigingu til „lekaáhættu“ og sýna að óstaðbundin störf geta leitt til þess að störf sem krefjast tiltekinnar menntunar safnist frekar á höfuðborgarsvæðið. Bent er á að óstaðbundin störf geta bæði stuðlað að auknu búsetufrelsi og tækifærum en jafnframt aukið líkur á tilfærslu starfa frá landsbyggð til höfuðborgarsvæðis ef ekki er sett fram skýr stefna innan stofnana eða fyrirtækja um óstaðbundin störf og fjarvinnu og henni fylgt eftir. Einnig er þess getið í skýrslunni að til þess að samræmi sé við  stefnumótandi byggðaáætlun þurfi störf sem eiga að styrkja landsbyggðirnar að vera auglýst með staðsetningu í landsbyggðunum þegar það er markmiðið.

Sjá nánar rannsóknarskýrsluna í heild sinni:

Tvíeggjað sverð. Leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins.

Umfjöllun um rannsóknina er einnig að finna á heimasíðu RHA, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri: Sérfræðistörf hafi lekið til höfuðborgarsvæðisins.

 

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389