Fara í efni  

Fréttir

Mikill áhugi fyrir Norðurslóðaáætlun

Á fjórða umsóknarfresti Norðurslóðaáætlunar (NPP) þann 18. mars sl. bárust alls 9 fullgildar umsóknir um ný verkefni. Þessar verkefnaumsóknir eru nú í matsferli og er ákvörðunar að vænta byrjun júní.

Íslenskir aðilar eru þátttakendur í 7 af þessum umsóknum sem endurspeglar mikinn áhuga á þátttöku í fjölþjóðlegum samstarfsverkefnum.

Þau 7 verkefni sem eru með íslenskri þátttöku eru:

  • Roadex Network Implementing Accessibility
  • New Plants for the Northern Periphery Market
  • Rural Transport Solutions
  • Safe-Ice Enhancing the Safety of Travel over Ice
  • The THING Project – THing sites International Networking Group
  • SMALLEST –Solutions for Microgeneration to Allow Energy Saving Technology
  • PhycoGlyco – Functional food products from sustainable seaweeds for alleviating type 2 diabets

Meðal umsækjenda nú má nefna Landbúnaðarháskóla Íslands, Vegagerðina, Þróunarfélag Austurlands, Hafrannsóknarstofnun, Þjóðgarðinn Þingvöllum, Háskóla Íslands, Fjarðabyggð og fleiri. Alls hafa borist 54 umsóknir um aðalverkefni á þeim 4 umsóknarfrestum sem liðnir eru og þar af eru 9 umsóknir í matsferli og 21 verkefni verið samþykkt. Íslenskir aðilar hafa alls verið umsækjendur í 27 aðalverkefnisumsóknum og þar af eru 7 í matsferli og 9 verið samþykkt eða 45% sem teljast verður góður árangur. Samtals hafa borist 47 umsóknir um forverkefni en þau hafa þann megin tilgang vinna að gerð aðalumsókna, leit samstarfsaðila og frágangi mótfjármögnunar. Umsóknir um forverkefni eru ekki bundnar neinum sérstökum umsóknarfrestum. Mikill fjöldi verkefnahugmynda er nú á frumstigi umsóknaferils um forverkefni.

FYRRI VERKEFNI:

  • Retail in Rural Regions. Samstarfsverkefni Íslands, Írlands, Færeyja, og Skotlands þar sem Rannsóknarsetur verslunarinnar Háskólanum Bifröst er þátttakandi í samstarfi við verslanir, Samtök verslunar, sveitarfélög og atvinnuþróunarfélög.
  • The Sea as Our Neighbour: Sustainable Adaption to Climate Change in Coastal Communities and Habitats on Europe‘s Northern Periphery – Coast Adapt. Samstarfsverkefni Íslands, Norður Írlands, Írlands, Skotlands og Noregs þar sem Háskóli Íslands, Sveitarfélagið Árborg og Mýrdalshreppur eru þátttakendur en meðal tengdra aðila eru Siglingastofnun, Veðurstofa Íslands, Samtök sveitarfélaga, Skipulagsstofnun og fleiri.
  • North Hunt, Sustainable Hunting Tourism. Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknasetur ferðaþjónustunnar, Veiðistjórnarsvið Umhverfisstofnunar.
  • NEED, Northern Environment Education Development. Samstarfsverkefni Íslands, Finlands, Noregs og Írlands. Íslenskir þáttakendur eru Fræðasetur Háskóla Íslands, Höfn Hornafirði, Háskólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarfélag Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveitarfélögin Hornafjörður, Skaftárhreppur, Fljótsdalshérað og Norðurþing.
  • PELLETime – Solutions for competitive pellet production in medium size enterprises. Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands og Skotlands. Íslenskir þátttakendur eru Héraðsskógar, Austurlandsskógar og Skógrækt ríkisins
  • Economuseum Northern Europe. Samstarfsverkefni Íslands, Færeyja, Norður Írlands, Írlands, Noregs og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Fruman Nýheimum, Höfn Hornafirði og Fræðslunet Austurlands.
  • Co-Safe, The cooperation for safety in sparsely populated areas. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Grænlands. Íslenskir þáttakendur eru FSA Háskólasjúkrahús, Akureyri og Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við fjölmarga innlenda aðila.
  • OLEII, Our Life as Elderly- implementation. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Færeyja. Íslenskir þátttakendur eru Akureyrarbær, Hafnarfjarðarbær og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
  • Northcharr, Sustainable Aquaculture of Arctic charr. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar og Noregs. Íslenskir þátttakendur eru Hólalax ehf, Rifós ehf, Íslandsbleikja ehf, Silfurstjarnan ehf, Klausturbleikja ehf, Skagafjarðarveitur, FISK-Seafood, Akvaplan-Niva og Matís.

STARFSSVÆÐI OG TENGILIÐUR ÁÆTLUNARINNAR

Norðurslóðaáætlun 2007-2013 nær landfræðilega yfir mjög víðfeðmt svæði en þátttökulönd eru Evrópusambandslöndin, Skotland, Norður Írland, Svíþjóð, Finnland og Írland auk Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu Byggðastofnunar. Tengiliður áætlunarinnar er Byggðastofnun, Þórarinn Sólmundarson thorarinn@byggdastofnun.is


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389