Fara í efni  

Fréttir

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina
Eyrarrósin

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík veita viðurkenningu til framúrskarandi menningarverkefna í tíunda sinn. 

Eyrarrósin, viðurkenning til framúrskarandi menningarverkefna á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í tíunda sinn sinn í febrúar 2014. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi.

Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur 1.650.000 krónur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 300.000 krónur auk flugferða. Umsækjendur  um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina. Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar.

Eyrarrósin beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Viðurkenningin er mikilvæg enda um veglega upphæð að ræða, og tilnefning til Eyrarrósar er einnig mikilsverður gæðastimpill fyrir þau afburða menningarverkefni sem hana hljóta.

Fyrri Eyrarrósarhafar eru: Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sumartónleikar í Skálholtskirkju, Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarnesi, Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.

Umsóknarfrestur um Eyrarrósina 2013 er til miðnættis þann 15. nóvember 2013 og skulu umsóknir sendar rafrænt á eyrarros@artfest.is.  Allar nánari upplýsingar eru á vef Listahátíðar í Reykjavík, listahatid.is.

Sjá auglýsingu

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389