Fara í efni  

Fréttir

Afgerandi meirihluti íbúa er ánægður með búsetu sína

Ástæður fyrir áframhaldandi búsetu

Könnunin meðal íbúa bæja og þorpa er hluti rannsóknarinnar Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnin er á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við innlenda og erlenda háskóla.  Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni.

Niðurstöður sýna fram á að afgerandi meirihluti íbúa í smærri byggðarkjörnum er ánægður með búsetu sína. Flestir íbúar eiga fjölskyldu og vini í byggðarlaginu og flestir tengjast samfélaginu, staðnum og náttúrunni sterkum böndum. Í könnuninni kom m.a. fram að mikill meirihluti þeirra sem ætluðu ekki að flytja á næstu árum töldu hreint loft, kyrrð og ró, litla hættu á afbrotum og litla umferð skipta miklu máli fyrir áframhaldandi búsetu sína í byggðarkjarnanum. Athygli vekur að talsvert fleiri þátttakendur töldu þessa þætti mikilvægari en atvinnu sína eða maka, húsnæðismál eða nálægð við foreldra, börn eða barnabörn. Þótt stundum sé talað um „sveitasæluna“ sem hálfgerða mýtu er ljóst að þessir þættir skipta verulegu máli fyrir byggðafestu í litlum byggðarkjörnum á Íslandi.

Hins vegar kom einnig í ljós að um fimmtungur ætlar mjög líklega að flytja frá byggðarlaginu tímabundið eða fyrir fullt og allt. Þar af ætla 14% líklega eða örugglega að flytja á brott á næstu 2–3 árum. Þótt hlutfall þeirra sem ætla að flytja sé misjafnt eftir byggðarkjörnum er lítill munur eftir landshlutum eða stærð byggðarkjarna. Atvinnutækifæri eru mikilvægasta einstaka ástæða þess að fólk segist ætla að flytja, en aðgengi að menningu og afþreyingu, heilbrigðisþjónustu og verslun og þjónustu skiptir einnig verulegu máli.

Skýrslu um Byggðafestu og búferlaflutninga: Bæir og þorp á Íslandi má nálgast HÉR (prentvæn útgáfa)

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389