Fréttir
Aflamark Byggðastofnunar skiptir víða sköpum
Á síðasta ári runnu samningar Byggðastofnunar um aflamark hennar við útgerðir og vinnsluaðila um allt land sitt skeið. Vinna við nýja samninga hefur því verið fyrirferðamikil síðustu misserin en gerðir hafa nú verið samningar í öllum þátttökubyggðalögunum, utan við Flateyri sem mun líta dagsins ljós á næstu vikum.
Alltaf er mikil umræða um þetta þarfa verkefni Byggðastofnunar og skiljanlegt að menn hafi á því skiptar skoðanir þar sem verið er að úthluta takmörkuðum gæðum án endurgjalds. Því er það mikið metnaðarmál starfsmanna stofnunarinnar í þessu verkefni sem og öðrum að vanda vel til verka og fylgja skýrum réttarheimildum. Það hefur tekist einkar vel, sem meðal annars úttektir Ríkisendurskoðunar og innri endurskoðunar bera með sér.
Nýir samningar eru í flestum tilfellum til sex ára og með það að markmiði að auka fyrirsjáanleika í rekstri samningsaðila og ýta þannig undir byggðafestu í viðkomandi byggðum. Samkvæmt skilagreinum samningsaðila viðhéldu eða sköpuðu samningarnir 416 ársverkum/störfum í mörgum af viðkvæmustu byggðalögum á Íslandi á seinasta fiskveiðiári. Störf sem mörg hver hefðu ella aflagst með viðeigandi neikvæðum byggðaáhrifum á þessum stöðum.
Á heimasíðu stofnunarinnar er ítarlegur „spurt og svarað“ kafli ásamt tilvitnunum í samningsaðila um mikilvægi verkefnisins. Þá er þar einnig að finna alla gildandi samninga.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember