Fara í efni  

Fréttir

Byggðarannsóknastyrkir

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði til rannsókna á sviði byggðamála.

Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins.

Að þessu sinni telst það umsóknum til tekna ef rannsóknarverkefni tengjast jöfnun á aðgengi landsmanna að grunnþjónustu og/eða atvinnu og þá meðal annars hvort lærdómur af Covid-faraldri getur nýst til stefnumótunar í byggðamálum og/eða haft jákvæð áhrif á búsetu í landsbyggðunum.

Við mat á umsóknum er meðal annars litið til þess hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, tengsla við byggðaáætlun, nýnæmi, vísindalegs- og hagnýts gildis og hæfni þeirra sem að verkefninu koma. 

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.

Styrkir verða veittir til eins árs. Sjóðurinn hefur allt að 10 milljónir króna til úthlutunar. Samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn.

Rafrænt umsóknarform, reglur Byggðarannsóknasjóðs og starfsreglur stjórnar sjóðsins er að finna á vef Byggðastofnunar.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir.

Netfang: sigga@byggdastofnun.is. Sími 4555461 og 8697203.

Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti mánudaginn 22. mars 2021.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389