Fara í efni  

Fréttir

Fimmtán ný verkefni styrkt af Norðurslóðaáætluninni

Fimmtán ný verkefni styrkt af Norðurslóðaáætluninni
stjórn og starfsmenn NPA

Á fundi sínum 3. júní sl. sem haldinn var í Færeyjum, samþykkti stjórn áætlunarinnar að styrkja 15 ný verkefni en alls komu 33 umsóknir  í þessu 6. kalli áætlunarinnar, sem er metfjöldi umsókna. Kallið er síðasta aðalkall áætlunarinnar á þessu tímabili (2021-2027) en hins vegar er opið ungmennakall eins og áður hefur verið fjallað um hér á síðunni.

Með þessari afgreiðslu hefur öllu fjármagni áætlunarinnar til aðalverkefna verið úthlutað. Verkefnin sem hlutu stuðning núna ná yfir allar þrjár áherslur áætlunarinnar og takast á við fjölbreyttar áskoranir, allt frá stafrænni heilbrigðisþjónustu og vernd líffræðilegrar fjölbreytni til seiglu samfélaga og eflingar stjórnsýslu- og skipulagsgetu.

Öflug íslensk þátttaka

Eins og fyrr var mjög öflug þátttaka frá Íslandi en af þeim 33 umsóknum sem bárust voru 20 með íslenskum þátttakendum og af þeim 15 sem samþykkt voru eru níu með íslenskum þátttakendum. Eins og áður hefur komið fram er framlag Íslands til verkefna áætlunarinnar tæpar 2,7 milljónir evra og vegna mikillar þátttöku íslenskra aðila í áætluninni kláruðust þeir fjármunir í árslok 2024. Til að tryggja áframhaldandi framgang áætlunarinnar ákváðu ESB löndin sem þátt taka í henni – Finnland, Svíþjóð og Írland – að fjármagna þátttöku íslenskra, færeyskra og grænlenskra aðila og nemur samanlagt framlag þeirra til Íslands eftir þessa úthlutun tæpum 2,6 milljónum evra. Hér er um verulega fjármuni að ræða sem hafa gert íslenskum þátttakendum kleift að taka virkan þátt í þessu mikilvæga samstarfi í atvinnu- og samfélagsþróun á norðurslóðum. Ákvörðunin endurspeglar þau verðmæti sem í alþjóðlegu samstarfi eru fólgin og því ástæða til að þakka  sérstaklega fyrir þetta en án þessa framlags hefði þátttöku íslenskra aðila í áætluninni lokið á árinu 2024.

Umfjöllun um verkefnin með íslenskum þátttakendum má nálgast hér. Þá er einnig umfjöllun um úthlutunina og öll verkefnin sem stuðning hlutu hér á heimasíðu áætlunarinnar.


Norðurslóðaáætlunin (Northern Periphery and Arctic Programme) er samstarfsvettvangur Evrópusambandsríkjanna Írlands,  Svíþjóðar og Finnlands og svo Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfsverkefnum milli landanna sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum áskorunum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar og er núgildandi áætlunartímabil 2021-2027.


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389