Fara í efni  

Fréttir

Forsendur sauðfjárbúskapar á Íslandi við það að bresta

Forsendur sauðfjárbúskapar á Íslandi við það að bresta
Mynd úr Stafnsrétt

Í nýrri samantekt Byggðastofnunar, sem unnin var að beiðni Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra og ráðherra byggðamála, kemur fram að rekstrarafkoma sauðfjárbúa, fyrir fjármagnsliði og afskriftir, hafi verið neikvæð frá árinu 2018. Ekki er útlit fyrir að rekstur sauðfjárbúa batni á næstu árum og að óbreyttum tekjum eru forsendur sauðfjárbúskapar brostnar.

Byggðastofnun vekur athygli á að sauðfjárrækt er víða undirstaða í byggð á dreifbýlum svæðum, ekki síst þar sem önnur atvinnutækifæri eru takmörkuð. Í samantektinni kemur fram að kynslóðaskipti hafi verið fátíð á undanförnum fimm árum. Ríflega þriðjungur sauðfjárbænda með 300 fjár eða meira er kominn yfir sextugt og er talið að stór hluti þeirra sé líklegur til að bregða búi á næstu árum. Rekstrarafkoma hafi verið neikvæð um nokkurra ára skeið og af því leiði að dregið hafi úr viðhaldi, endurræktun og áburðarkaupum.

Rekstrarniðurstaða meðalsauðfjárbúsins, sem hlutfall af tekjum, stefnir í að verða neikvæð um allt að 50% og að rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnstekjur og afskriftir verði neikvæð um 25%. Miðað við stöðu mála er því líklegt að einhverjir sauðfjárbændur hætti búskap haustið 2022. Þeir sauðfjárbændur sem muni halda áfram geri það í þeirri von að rekstraraðstæður batni. Gerist það ekki megi búast við því að fjölmargir sauðfjárbændur hætti búskap haustið 2023.

Hætti fólk sauðfjárbúskap þá getur það haft fjölþætt neikvæð áhrif og margfeldisáhrif á ákveðnum svæðum, þar sem leitir og önnur sameiginleg verkefni sauðfjárbænda verða þeim sem eftir sitja ofviða. Sem dæmi um viðkvæm svæði má nefna Reykhólahrepp, Dali, Strandir, Húnavatnssýslur og norðausturhorn landsins.

Í samantekt um mögulegar mótvægisaðgerðir er m.a. bent á að tekjur í greininni þurfi að hækka í takt við kostnaðarhækkanir. Það verði annað hvort gert með hækkun á skilaverði afurðastöðva til bænda og þar af leiðandi hækkandi útsöluverði sauðfjárafurða eða með auknum opinberum stuðningi. Einnig verði að skoða leiðir til að lækka framleiðslukostnað en slíkar aðgerðir skili fremur ávinningi til lengri tíma litið, en verði varla til bjargar við núverandi aðstæður. Þá komi til greina að aðstoða bændur við að fara út í aðra starfsemi á jörðum sínum eftir aðstæðum á hverjum stað. Loks er bent á að huga þurfi að andlegri velferð bænda og fjölskyldna þeirra við þessar aðstæður.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389