Fara í efni  

Fréttir

Íbúar í Kaldrananeshreppi hefja verkefnið Jú víst! Kraftur í Kaldrana af miklum krafti

Íbúar í Kaldrananeshreppi hefja verkefnið Jú víst! Kraftur í Kaldrana af miklum krafti
Frá athöfninni. Mynd: Valgeir J. Guðmundsson

Fimmtudaginn 26. febrúar fór fram fyrsta úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Jú víst! Kraftur í Kaldrana og var athöfnin haldin í húsnæði Verslunarfélags Drangsness. Mæting var góð og þar ríkti mikil stemning og frumkvöðlakraftur.

Alls bárust 28 umsóknir, þar sem sótt var um rúmar 47 milljónir króna. Heildarkostnaður verkefnanna sem sótt var um fyrir nemur um 160 milljónum króna. Að þessu sinni hlutu 19 verkefni styrk, samtals 11,5 milljónir króna og var styrkþegum óskað innilega til hamingju með þann áfanga.

Valgeir Jens Guðmundsson, verkefnisstjóri, ávarpaði gesti og fór yfir mikilvægi þess að halda hugmyndavinnu áfram. Verkefni samfélagsins væru mörg og margar hendur vinna létt verk sem væri lykillinn að því að nýta þetta tækifæri sem Brothættar byggðir eru fyrir samfélag eins og Kaldrananeshrepp.

Finnur Ólafsson, oddviti, flutti einnig ávarp og þakkaði fyrir þann kraft sem íbúar sveitarfélagsins hefðu sýnt með þeim fjölda umsókna sem bárust í sjóðinn. Hvatti hann íbúa til að halda þeirri góðu vinnu áfram og hlakkaði til að sjá allar þær góðu hugmyndir sem hér væru komnar fram verða að veruleika. Óskaði hann jafnframt styrkþegum innilega til hamingju.

Það þótti við hæfi að halda viðburðinn í Verslunarfélagi Drangsness því þar mun á næstunni eiga sér stað mikil uppbygging, þökk sé styrkjum frá Frumkvæðissjóði JKK. Verður spennandi að sjá afraksturinn á komandi ári.

Myndir á úthlutunarathöfninni tók Valgeir Jens Guðmundsson

Eftirtalin verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði Jú víst! Kraftur í Kaldrana (JKK) árið 2026:

  • Galdra- og þjóðsagnaslóð á Ströndum Strandagaldur ses 300.000 kr.
  • Skíðavél til heilsársþjálfunar fyrir unga skíðagönguiðkendur SFS Bikarhópur SFS (13-17 ára) 500.000 kr.
  • Skíðaskotfimisvæði Skíðafélags Strandamanna Skíðafélag Strandamanna 400.000 kr.
  • Þjónustuskýli og upplýsingamiðlun í Bjarnarfirði Remote Iceland ehf (Laugarhóll – Kaldrananeshreppur) 750.000 kr.
  • Hönnun á leik- og útivistarsvæði við Kotbýli kuklarans Strandagaldur ses 800.000 kr.
  • Business Plan Permavital ehf Stephan Kalt 400.000 kr.
  • Líkamsræktarmánuður Stephan Kalt 100.000 kr.
  • Norðurljósasund Stephan Kalt 50.000 kr.
  • Hestafróðleikur og útreiðanámskeið Stephan Kalt 150.000 kr.
  • Framleiðslueldhús í Samkomuhúsið Baldur Samkomuhúsið Baldur 1.500.000 kr.
  • Íbúabyggð og vinnumiðstöð í Bjarnarfirði Svanshóll Ströndum 750.000 kr.
  • Bryggjuhátíð á Drangsnesi 2026 Bryggjuhátíð á Drangsnesi 2026 500.000 kr.
  • Uppsetning á kaffihúsi í Verslunarfélagi Drangsness Verslunarfélag Drangsness 800.000 kr.
  • Standsetning heitu pottanna Verslunarfélag Drangsnes 850.000 kr.
  • Standsetning Búðarinnar Verslunarfélag Drangsness 1.000.000 kr.
  • Myndskreyting gáms – listaverkefni grunnskólans á Drangsnesi Útgerðarfélagið Skúli ehf. 200.000 kr.
  • Segl – útilistaverk á Forvaða Ásta Þórisdóttir 1.600.000 kr.
  • Vatnsveita í fiskeldi Nesvegur 5 ehf. 500.000 kr.
  • Iðnaðarhúsnæði - iðnaðarbil Sögur af landi ehf. 350.000 kr.

 

  


Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389