Fara í efni  

Fréttir

Umsjónarmaður áhættustýringar

Starf umsjónarmanns áhættustýringar

Byggðastofnun óskar eftir starfsmanni í starf umsjónarmann áhættustýringar.  Starfið heyrir undir forstjóra og rekstrarsvið.

Helstu verkefni

  • Koma að gerð og eftirfylgni áhættustefnu Byggðastofnunar
  • Gerð áhættuskýrslna og skýrslugjöf til stjórnar
  • Skýrslugerð og skýrsluskil til eftirlitsaðila og annarra hagaðila
  • Umsjón með afskriftarsjóði útlána
  • Vinna með forstöðumanni rekstrarsviðs að gerð ársreiknings og árshlutauppgjörs
  • Önnur verkefni í samráð við yfirmann

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði viðskipta- eða hagfræði
  • Góð fjármálaþekking og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Reynsla af greiningarvinnu, góð greiningarhæfni og færni í Excel
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi ásamt lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt, í hópi og undir álagi

Frekari upplýsingar um starfið

Byggðastofnun hefur það markmið að hafa innan sinna raða öflugan og jákvæðan hóp starfsmanna. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi líkt og niðurstöður úr árlegri starfsmannakönnun Stofnun ársins bera með sér.

Starfið er staðsett á Sauðárkróki sem er höfuðstaður Skagafjarðar og einn öflugasti byggðakjarni landsbyggðarinnar.

Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. 

Starfshlutfall er 100%

Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni.  Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. 

Umsókn skal skilað í umsóknargátt sem finna má á heimasíðu Byggðastofnunar, byggðastofnun.is sem og nánari upplýsingar um stofnunina.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Arnar Már Elíasson, forstjóri Byggðastofnunar,

Sími 455-5400

Netfang: arnar@byggdastofnun.is

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389