Fara í efni  

Fréttir

Mælaborð Byggðastofnunar

Mælaborð Byggðastofnunar
Mælaborð byggðastofnunar

Opnað hefur verið vefsvæði á heimasíðu Byggðastofnunar fyrir mælaborð með ýmsum byggðatengdum upplýsingum. Í lok sumars kom út gagnatorg um íbúa sveitarfélaga og landshluta og fyrir jól bættist við kortamælaborð um húsnæði fyrir störf án staðsetningar. Nú hafa þrjú gagnvirk mælaborð til viðbótar verið birt um eftirfarandi efni:

1)      Sveitarfélagaskipan aftur til ársins 1875. Kort þar sem sveitarfélagaskipan á Íslandi teiknast upp fyrir valið tímabil eða ár og sveitarfélög sem taka breytingum (sameiningar eða uppskiptingar) eru aðgreind með litum. Upplýsingar um heiti og sveitarfélaganúmer auk skýringa á breytingum birtast þegar músarbendill er færður yfir sveitarfélögin á kortinu.

Sveitarfélagaskipan

2)     Íbúafjölda sveitarfélaga og byggðakjarna. Mælaborðið gefur fljótlegt yfirlit yfir íbúafjölda landshluta, sveitarfélaga og byggðakjarna 1. janúar aftur til ársins 2001. Á kortinu ræðst stærð hringjanna sem tákna byggðakjarna landsins af íbúafjölda þeirra og sveitarfélög eru lituð þannig að þau fjölmennustu hafa dekkstan lit en fámenn sveitarfélög eru ljósari. Þegar bendill er færður yfir viðkomandi svæði birtast upplýsingar um fjölda, kyn og aldur íbúa sveitarfélagsins eða byggðakjarnans. Ef smellt er á ákveðinn landshluta í töflu teiknast kortið upp miðað við hann.

Íbúafjöldi sveitarfélaga og byggðakjarna

 3)      Breytingar á íbúafjölda sveitarfélaga og landshluta. Kort sem sýnir hlutfallslega fækkun eða fjölgun íbúa sveitarfélaga eða landshluta. Á kortinu litast svæði græn ef íbúum fjölgaði á völdu tímabili en rauð ef þeim fækkaði. Jafnframt birtast ítarlegri upplýsingar og sundurliðun breytinga þegar bendill er færður yfir svæði, meðal annars fæddir umfram dána og flutningsjöfnuður (aðfluttir umfram brottflutta).

Breyting á íbúafjölda sveitarfélaga og landshluta

Mælaborðasíðan er aðgengileg gegnum "Mælaborð" takkann á forsíðu vefs Byggðastofnunar og í flipanum "Útgefið efni".

Fleiri mælaborð munu birtast á vefsvæðinu á næstunni. Meðal gagna sem stendur til að birta í mælaborði eru atvinnutekjur svæða, orkukostnaður heimila, fasteignagjöld og ríkisstörf um land allt.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389