Fara í efni  

Fréttir

Nýtt fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og opnað fyrir umsóknir

Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair (áður Flugfélag Íslands) staðið saman að Eyrarrósinni; viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. 

Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun samstarfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan bakhjarl lista- og menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Samráð var haft við menningarfulltrúa á landsbyggðinni í því ferli.

Helstu breytingar á fyrirkomulagi verðlaunanna eru eftirfarandi:

  • Eyrarrósin verður hér eftir veitt annað hvert ár í stað hvers árs.
    Með því að veita viðurkenninguna annað hvert ár skapast svigrúm til þess að gera hverjum verðlaunahafa mun hærra undir höfði en verið hefur. Viðurkenningin er sem fyrr veitt verkefni sem hefur fest sig rækilega í sessi, er vel rekið, með skýra framtíðarsýn og sem hefur sannarlega listrænt gildi og slagkraft út í samfélagið.
  • Eyrarrósarhafa verður boðið að standa að veglegum viðburði á Listahátíð 2022
    Boðinu fylgir fjárhagslegur stuðningur til framleiðslu viðburðarins og framkvæmdar. Viðburðurinn verður hluti af aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík og kynntur sem slíkur.
  • Vandað stutt heimildamyndband verður framleitt um Eyrarrósarhafann.
  • Verðlaunafé til Eyrarrósarhafa verður aukið úr 2 milljónum í 2,5 milljónir.
  • Eyrarrósarlistinn og tilnefningar til Eyrarrósarinnar verða lagðar niður en þess í stað veitt þrenn 750 þúsund króna hvatningarverðlaun til nýrri verkefna.
    Hvatningaverðlaunin eru veitt verkefnum sem eru yngri en þriggja ára en eru sannarlega nýbreytni og/eða viðbót við lista- og menningarlíf síns svæðis.

OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2021 og rennur umsóknarfrestur út 26. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknareyðublað má finna hér.

Hefð er fyrir því að veita verðlaunin í heimabyggð síðasta Eyrarrósarhafa og þannig verður það áfram. Verðlaunaafhending fer þó nú fram að vori í stað febrúar áður. Þar sem heimildamyndahátíðin Skjaldborg hlaut viðurkenninguna síðast fer afhendingin fram á Patreksfirði að þessu sinni. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389