Fara í efni  

Fréttir

Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Stykkishólmur

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna fjarvinnslustöðva, sbr. aðgerð B.8 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið aðgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Ráðuneyti og stofnanir sem ráðast í slík átaksverkefni utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um stuðning en úthlutað verður allt að 24 milljónum króna. Heimilt er að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert verkefni. Þá er heimilt að veita styrki til sama verkefnis til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir hvers árs.

Ráðuneyti og stofnanir ríkisins utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins geta sótt um. Stuðst er við þá skilgreiningu að vinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins nái suður og vestur yfir Suðurnes, austur fyrir Selfoss og norður að Borgarnesi, svokallað Hvítá-Hvítá svæði. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. nóvember 2019.

Þegar hefur verið úthlutað framlögum vegna sértækra verkefna sóknaráætlana og verður á næstunni úthlutað framlögum vegna verslunar í strjálbýli. Framangreindar úthlutanir byggja á reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er þeim ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389