Fréttir
Fasteignagjöld víðast hækkað umfram verðlag
Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2026. Samhliða skýrslunni hefur mælaborð stofnunarinnar verið uppfært með nýjustu gögnum.
Fasteignagjöld viðmiðunareignar hafa víðast hvar hækkað talsvert á síðustu árum. Frá árinu 2021 hefur meðalfasteignamat viðmiðunareignar á matssvæðunum 103 í greiningunni hækkað um 81% að nafnvirði, úr 41 m.kr. í 75 m.kr. Á sama tíma hafa meðalfasteignagjöld viðmiðunareignar hækkað um 60%, en verðlag um 36%.
Árið 2025 voru fasteignagjöld viðmiðunareignar í fyrsta sinn að meðaltali hærri á matssvæðum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að fasteignamat sé almennt mun hærra á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða er enn uppi árið 2026 þó munurinn hafi minnkað lítillega.
Meðaltal fasteignagjalda fyrir viðmiðunareign var 535,6 þ.kr. árið 2026, samanborið við 502,4 þ.kr. árið 2025. Hækkunin milli ára nemur 6,6%. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda varð á höfuðborgarsvæðinu, eða 8,1%, og þar næst á Vesturlandi 6,9%. Minnst var hækkunin á Norðurlandi vestra 3,6%.
Heildarfasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2026 eru hæst á matssvæðunum tveimur á Seltjarnarnesi, 795 og 797 þ.kr. Þar á eftir koma Egilsstaðir, Selfoss, Borgarnes, Laugarvatn og Sauðárkrókur. Lægstu gjöld fyrir viðmiðunareign eru á Raufarhöfn 219 þ.kr., Kópaskeri 254 þ.kr. og Bakkafirði 263 þ.kr.
Fasteignagjöld viðmiðunareignar eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2026 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignamat viðmiðunareignarinnar á hverju svæði er reiknað út af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember