Fréttir
Styrkjum endurúthlutað í Árneshreppi
Verkefnisstjórn Áfram Árneshrepps hefur endurúthlutað styrkfé sem áður hafði verið veitt til verkefna sem ekki komust til framkvæmda. Samtals nema styrkirnir 7,2 milljónum króna og renna þeir til fjögurra verkefna sem ætlað er að efla samfélagið og stuðla að frekari uppbyggingu í Árneshreppi.
Eftirtalin verkefni hljóta styrki:
- Baskasetur Íslands hlýtur 1,6 milljónir króna til endurbóta á húsnæði sýningarinnar, tanki við gömlu síldarverksmiðjuna í Djúpavík.
- Urðartindur hlýtur 2,5 milljónir króna til borunar eftir heitu og köldu vatni í Norðurfirði.
- Ferðamálasamtök Árneshrepps hljóta 1,6 milljónir króna til ímyndarátaks og kynningar á Árneshreppi.
- Verzlunarfjelag Árneshrepps hlýtur 1,5 milljónir króna til endurnýjunar á tækjabúnaði verslunarinnar.
Gert er ráð fyrir að öll verkefnin komi til framkvæmda á árinu 2026. Styrkjunum er ætlað að styðja við mikilvæga uppbyggingu, bætta þjónustu og aukinn sýnileika samfélagsins í Árneshreppi.
Áfram Árneshreppur er hluti af verkefninu Brothættar byggðir sem er aðgerð á byggðaáætlun og unnið í samstarfi Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Árneshrepps.

Höfnin í Norðurfirði. Myndasmiður Kristján Þ. Halldórsson
Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember