Fara í efni  

Fréttir

Úthlutun styrkja í tilraunaverkefnunum Raufarhöfn og framtíðinni II og Öxarfirði í sókn II

Nanna Steina og Einar Ingi

Úthlutað var í annað sinn úr frumkvæðissjóðum í tilraunaverkefnunum tveimur þann 31. mars. sl. Í þetta sinn var úthlutunarhátíðin haldin í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn og var góð mæting á viðburðinn.

Fjármunir til ráðstöfunar 2026

Til ráðstöfunar í þessari úthlutun voru kr. 11.500.000 í verkefninu Raufarhöfn og framtíðin II og kr. 15.025.000 í verkefninu Öxarfjörður í sókn II. Alls bárust 17 umsóknir að þessu sinni í Frumkvæðissjóð Raufarhafnar og framtíðarinnar II og óskað var eftir tæplega 25 m.kr. í styrki. Í Frumkvæðissjóð Öxarfjarðar í sókn II bárust alls 15 umsóknir um styrki og umbeðið styrkfé var um 35,2 m.kr.

Frumkvæðisverkefni af ýmsum toga

Verkefnin sem hlutu brautargengi að þessu sinni eru fjölbreytt og spennandi verður að fylgjast með framgangi þeirra. Hægt er að kynna sér verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni úr Frumkvæðissjóði Raufarhafnar og framtíðarinnar II hér, og verkefni sem hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði Öxarfjarðar í sókn II hér. Styrkþegum er óskað innilega til hamingju með styrkina og velfarnaðar í verkefnum sínum.

Hér má sjá mynd sem tekin var á úthlutunarhátíðinni, það eru þau Nanna Steina og Einar Ingi sem halda vel utan um tilraunaverkefnin og verkstýra þeim sitt á hvorum staðnum í góðri samvinnu.

Verkefnið Brothættar byggðir er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389