Fara í efni  

Fréttir

37 lista- og menningarverkefni á landsbyggðinni sóttu um Eyrarrósina

Umsóknarfrestur um Eyrarrósina 2017 rann út á sunnudaginn. 37 lista- og menningarverkefni á landsbyggðinni sóttu um að þessu sinni og verður tilkynnt um hvaða sex þeirra komast á Eyrarrósarlistann í febrúar næstkomandi. Þrjú þeirra verkefna verða tilnefnd til sjálfrar Eyrarrósarinnar sem verður afhent við hátíðlega viðhöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri (handahafa viðurkenningarinnar 2016).

Listahátíð, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni. Lesa má meira um verkefnið hér: http://www.listahatid.is/eyrarrosin/


Til baka

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389