Fréttir
Byggðaþróun – styrkir til meistaranema
22 október, 2026
Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. nóvember 2026
Lesa meira
Tálknfirðingar fá gullið tækifæri til að hafa áhrif á sitt samfélag
21 október, 2026
Haldið verður tveggja daga íbúaþing á Tálknafirði föstudaginn 30. og laugardaginn 31. október næstkomandi. Íbúaþingið er eitt af upphafsskrefum í verkefninu Brothættar byggðir sem hófst nýlega í byggðarlaginu.
Lesa meira
Fjársjóðurinn sem fólginn er í samheldni íbúa í Reykhólahreppi
19 október, 2026
Íbúafundur var haldinn í byggðaþróunarverkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða fimmtudaginn 15. október sl. Þetta er annað árið í röð sem slíkur fundur er haldinn undir merkjum verkefnisins og ánægjulegt var sjá að íbúar í Reykhólahreppi fjölmenntu á fundinn og tóku virkan þátt.
Lesa meira
Það er sannarlega Kraftur í Kaldrana!
14 október, 2026
Vel sóttur íbúafundur var haldinn í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi í gærkvöldi, 13. október, á vegum verkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana. Glatt var á hjalla og íbúar tóku virkan þátt á fundinum.
Lesa meira
Yfir helmingur atvinnutekna í Vestur-Skaftafellssýslu úr ferðaþjónustu
14 október, 2026
Byggðastofnun hefur gefið út skýrsluna Tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008–2025. Í skýrslunni er fjallað um þróun atvinnutekna eftir svæðum, atvinnugreinum og kyni. Atvinnutekjur jukust um 3,2% á landsvísu árið 2025, mest á Suðurlandi, en drógust saman á Suðurnesjum. Í skýrslunni er einnig fjallað sérstaklega um vægi ferðaþjónustu, en yfir helmingur atvinnutekna í Vestur-Skaftafellssýslu kemur úr einkennandi greinum ferðaþjónustu.
Lesa meira
Íbúafundi í Reykhólahreppi frestað vegna veðurs
13 október, 2026
Íbúafundi í verkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða hefur nú verið frestað vegna veðurs.
Lesa meira
Hærra hlutfall þjónustu sótt innan eigin þjónustusvæðis á fjölmennari búsetusvæðum
9 október, 2026
Svarendur á búsetusvæðum með 2.500 íbúa eða fleiri sækja að meðaltali um 91% þjónustu innan eigin þjónustusvæðis, samanborið við 70% á svæðum með 1.000–2.499 íbúa. Munurinn er 21 prósentustig. Þetta kemur fram í þjónustukönnun Byggðastofnunar frá 2024, en fyrri hluti skýrslunnar kom út í mars 2026.
Lesa meira
Brothættar byggðir – stækkun verkefnis
7 október, 2026
Nú eru ákveðin tímamót í verkefninu Brothættar byggðir þar sem stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að leggja verkefninu lið með auknu fjárframlagi, samtals 80 m.kr. á ári, næstu fimm árin.
Lesa meira
Íbúafundur í verkefninu Jú víst! Kraftur í Kaldrana
7 október, 2026
Íbúafundur verður haldinn í Samkomuhúsinu Baldri þriðjudaginn 13. okt. nk. kl. 17:00-20:00 á vegum byggðaþróunarverkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana. Á fundinum mun nýr verkefnisstjóri, Ingibjörg Benediktsdóttir, kynna sig til leiks en hún hóf störf í byrjun september og tók við verkefnisstjórn af Valgeiri Jens Guðmundssyni.
Lesa meira
Íbúafundur í verkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða
6 október, 2026
Íbúafundur verður haldinn í bókasafni grunnskólans á Reykhólum miðvikudaginn 14. okt. nk. kl. 17:00-19:30 á vegum byggðaþróunarverkefnisins Fjársjóður fjalla og fjarða. Nýr verkefnisstjóri, Guðmundur Konráðsson, mun kynna sig til leiks en hann hefur tekið við keflinu af Emblu Dögg Bachmann og hóf störf síðsumars.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

