Fréttir
Það er sannarlega Kraftur í Kaldrana!
Vel sóttur íbúafundur var haldinn í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi í gærkvöldi, 13. október, á vegum verkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana. Glatt var á hjalla og íbúar tóku virkan þátt á fundinum. Helga Harðardóttir, formaður verkefnisstjórnar, setti fundinn og bauð nýjan verkefnisstjóra, Ingibjörgu Benediktsdóttur velkomna til starfa um leið og fráfarandi verkefnisstjóra Valgeiri Jens Guðmundssyni voru þökkuð góð störf í þágu verkefnisins. Því næst var gengið til dagskrár og Ingibjörgu afhent fundarstjórn.
Framvinda verkefnisins
Verkefnisstjóri fór yfir stöðu verkefnisins og hvernig framvindan hefur verið á þessu fyrsta þátttökuári. Fram kom að unnið hefur verið að hinum ýmsu starfsmarkmiðum og fór Ingibjörg yfir hvaða markmið eru í vinnslu, tækifæri sem liggja til sóknar og hvar óvissa ríkir um framgang markmiða.
Kynningar frumkvöðla
Því næst stigu á stokk tveir styrkþegar, þau Anna Björg Þórarinsdóttir og Vésteinn Sveinsson, sem kynntu frumkvæðisverkefni sem þau eru að vinna að. Anna Björg sagði frá hugmyndum að leik- og útivistarsvæði sem verið er að hanna í kringum Kotbýli Kuklarans í Bjarnafirði. Verkefnið er hluti af Galdrasýningunni á Ströndum. Vésteinn sagði frá uppbyggingu í Ásmundarnesi en þar hefur hann ásamt fjölskyldu sinni nýlega tekið við búi og er með seiðaeldisstöð, æðavarp og fleira. Vésteinn sagði frá árangrinum á þessu fyrsta ári þeirra á búinu og áætlunum framundan.
Lánamöguleikar hjá Byggðastofnun
Meðal gesta fundarins voru þau Andri Þór Árnason og Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingar hjá fyrirtækjasviði Byggðastofnunar. Guðbjörg kynnti lánamöguleika og lánakjör sem íbúum landsbyggðarinnar standa til boða úr mismunandi lánaflokkum Byggðastofnunar. Sér í lagi kynnti hún lánaflokkinn viðkvæm byggðarlög en íbúar í þátttökubyggðarlögum Brothættra byggða njóta þar forgangs.
Kvenfélagið Snót, veitingar og verkefnisáætlun
Kvenfélagskonur í kvenfélaginu Snót sáu um veitingar að þessu sinni á íbúafundinum í boði sveitarfélagsins. Dýrindis gúllassúpa var fram borin með meðlæti og kökur og kaffi að því loknu. Þegar allir voru orðnir mettir þá hófust líflegar umræður í hópum um verkefnisáætlunina, meginmarkmið verkefnisins og starfsmarkmiðin sem mótuð voru upp úr hugmyndum sem íbúar settu fram á íbúaþingi fyrir um ári síðan.
Fundur verkefnisstjórnar
Fyrr um daginn þann 13. október fundaði verkefnisstjórn Jú víst! Kraftur í Kaldrana og fékk m.a. kynningu á tveimur styrktum frumkvæðisverkefnum á vettvangi. Búðin var heimsótt og þar kynnti Mikael Rafn L. Steingrímsson þær breytingar sem hafa verið gerðar og eru í farvatninu. Einnig var gengið að hinum frægu heitu pottum í fjöruborðinu á Drangsnesi og sagt frá þeim endurbótum sem framundan eru þar.
Það eru sannarlega spennandi tímar í Kaldrananeshreppi og gaman að sjá hvernig íbúar hafa tekið höndum saman um að efla sitt samfélag.
Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru af þessu tilefni. Myndasmiðir voru Heba Guðmundsdóttir, Kristján Þ. Halldórsson og Helga Harðardóttir.

Frá íbúafundi í samkomuhúsinu Baldri í Kaldrananeshreppi.

Ingibjörg Benediktsdóttir, nýr verkefnisstjóri í JKK.

Anna Björg Þórarinsdóttir segir frá frumkvæðisverkefni.
Vésteinn Sveinsson sagði frá frumkvæðisverkefni.
Guðbjörg Óskarsdóttir sagði frá lánamöguleikum hjá Byggðastofnun.
Spjallað á íbúafundi.
Á Forvaðanum.
Við heitu pottana á Drangsnesi.

Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

