Fréttir
Brothættar byggðir – stækkun verkefnis
Nú eru ákveðin tímamót í verkefninu Brothættar byggðir þar sem stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að leggja verkefninu lið með auknu fjárframlagi, samtals 80 m.kr. á ári, næstu fimm árin.
Vegna þessa hefur skapast tækifæri til að stækka verkefnið. Starfsfólk Byggðastofnunar hefur unnið að útfærslu nýrrar nálgunar m.a. með því að bregðast við ákalli um að fleiri byggðarlög en þau sem skora hæst á mælikvörðum Brothættra byggða geti tekið þátt í byggðaþróunarverkefninu. Einnig hefur þriggja ára tilraunaverkefni verið fest í sessi sem framhald af Brothættum byggðum, Brothættar byggðir II. Verkefnið hefur verið í gangi undanfarin tvö ár í tveimur fyrrum þátttökubyggðarlögum.
Byggðaþróunarverkefnið hóf göngu sína árið 2012. Samtals hafa 17 byggðarlög tekið þátt í verkefninu frá upphafi og samstarf um hvert og eitt verkefni hefur verið á milli Byggðastofnunar, sveitarfélags og viðkomandi landshlutasamtaka.
Þrískipt verkefni
Frá byrjun árs 2027 verða þrjár þátttökuleiðir í verkefnið: Brothættar byggðir I, Brothættar byggðir II og nýtt verkefni sem fær heitið Sterkari byggðir. Öll verkefnin byggja á hugmyndafræði grunnverkefnis Brothættra byggða I.
Meginmarkmið allra verkefnanna þriggja er eftirfarandi: Að valdefla og virkja frumkvæði íbúa, treysta stoðir dreifðra byggða og að styrkja byggðafestu.

Fjöldi þátttökubyggðarlaga
Lagt er upp með að á hverjum tíma verði unnt að hafa fjögur til fimm þátttökubyggðarlög í Brothættum byggðum I, tvö í Brothættum byggðum II og tvö í Sterkari byggðum. Því skapast svigrúm á næstu misserum fyrir ný byggðarlög til þátttöku sem áhuga hafa á að efla sín samfélög með hugmyndafræði Brothættra byggða.
Nánari upplýsingar veita: Kristján Þ. Halldórsson kristjan@byggdastofnun.is, Helga Harðardóttir helga@byggdastofnun.is og Heba Guðmundsdóttir heba@byggdastofnun.is, umsjónarfólk Brothættra byggða hjá Byggðastofnun.

Samhent fjölskylda – mynd tekin við Steingrímsfjörð í haustbirtu - KÞH
Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember