Fara í efni  

Fréttir

Ársfundur Norðurslóðaáætlunarinnar – beint streymi

Tuttugu og fimm ára afmælisráðstefna Norðurslóðaáætlunarinnar sem fram fer í Bodø í Noregi verður í beinu streymi 1. og 2. október. Á ráðstefnunni sem ber heitið Punktarnir tengdir  koma saman þátttakendur í verkefnum og fulltrúar samfélaga á starfssvæði áætlunarinnar ásamt umsjónaraðilum hennar. Farið verður yfir farinn veg í samstarfinu og horft til framtíðar þess.

Fyrir þau sem ekki eiga þess kostað sækja ráðstefnuna í Bodø er boðið upp á beint streymi frá henni báða dagana þar sem boðið verður upp á áhugaverð framsöguerindi, pallborðsumræður og kynningar á verkefnum og þannig brugðið ljósi á það alþjóðlega samstarf sem áætlunin hefur stuðlað að.

Hægt er að fylgjast með streyminu, einfaldlega með því að smella á tenglana hér að neðan á skilgreindum tíma.

  1. okt. kl. 07:00 – 15:00 að íslenskum tíma: Streymi  
  2. okt. kl. 07:00 – 14:00 að íslenskum tíma: Streymi

Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.

Norðurslóðaáætlunin (Northern Periphery and Arctic Programme) er samstarfsvettvangur Evrópusambandsríkjanna Írlands,  Svíþjóðar og Finnlands og svo Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfsverkefnum milli landanna sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum áskorunum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar og er núgildandi áætlunartímabil 2021-2027.

Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389