Fara í efni  

Fréttir

Árshlutareikningur 2007

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir janúar til júní 2007 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 17. ágúst 2007.Hagnaður tímabilsins nam 4.018 þús. kr.

Hreinar vaxtatekjur námu 86.136 þús. kr. miðað við neikvæðar vaxtatekjur upp á 49.281 þús. kr. á sama tímabili 2006.  Rekstrartekjur námu 166.375 þús. kr. og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 162.357 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé voru neikvæðar um 30.148 þús. kr.  Hagnaður tímabilsins nam því 4.018 þús. kr. miðað við 194.013 þús. kr. hagnað á sama tíma 2006.

Eigið fé Byggðastofnunar nam 1.055.910 þús. kr. eða 9,26% af niðurstöðu efnahagsreiknings.  Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 9,03%.  Samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 5,36% af eigin fé.

Eignir Byggðastofnunar í lok júní 2007 námu 11.395.734 þús. kr., þar af námu útlán 8.938.508 þús. kr. og hafa lækkað um 537.600 þús. kr. frá lok árs 2006.  Skuldir Byggðastofnunar námu 10.339.824 þús. kr. og hafa lækkað um 813.282 þús. kr. frá lok árs 2006.

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru um áramótin 403.489 þús. kr.

Skoða má árshlutauppgjörið hér

Tilkynning til OMX Kauphallarinnar á Íslandi

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389