Fara í efni  

Fréttir

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2013

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2013, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 26. ágúst 2013.  Hagnaður tímabilsins nam 184,2 milljónum króna, samanborið við 206,4 milljón króna tap á sama tímabili 2012. Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013 staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið afskrifaðar.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2013:

  • Hagnaður stofnunarinnar á tímabilinu nam 184,2 mkr. 
  • Hreinar vaxtatekjur voru 221,3 milljónir króna eða 42,0% af vaxtatekjum, samanborið við 317,4 mkr. (44,8% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2012. 
  • Laun og almennur rekstrarkostnaður námu 205 milljónum samanborið við 166 milljónir á sama tímabili 2012 
  • Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár var neikvætt um 79,7 milljónir en voru 339 milljónir 2012. 
  • Eignir námu 15.847 milljónum og hafa lækkað um 891 milljón frá áramótum. 
  • Þar af voru útlán og fullnustueignir 12.551 milljón. 
  • Skuldir námu 13.549 milljónir og hafa lækkað um 1.076 milljónir frá áramótum. 
  • Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 71 milljón. 
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 14,92% en skal að lágmarki vera 8%

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar um allt að 2.000 milljónir króna. Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna greiddar til stofnunarinnar í janúar 2012 en eftirstöðvarnar, 250 milljónir króna greiddar í janúar 2013.

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er nú 14,92%.

Fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra er nú rekið mál þar sem tekist er á um lögmæti erlendra lána stofnunarinnar, þar sem verðtryggðu láni í íslenskum krónum hefur verið skuldbreytt með viðauka í lán í erlendri mynt. Málflutningur fer fram haustið 2013. Uppreiknuð lán stefnanda nema nú um 207,3 milljónum króna en verði fallist á kröfur hans munu þau lækka um allt að 50% Samsvarandi útlán hjá stofnuninni nema að kröfuvirði 911,3 milljónum króna. Ekki hefur verið fært sérstakt varúðarframlag á afskriftareikning vegna þessa.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is 

Árshlutauppgjör janúar - júní 2013


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389