Fara í efni  

Fréttir

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar – júní 2026

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2026, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. ágúst 2026.

Afkoma tímabilsins var jákvæð um 685 milljónir króna.  Eiginfjárhlutfall skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 26,71% í lok júní.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.  Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni.  Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi

  • Afkoma tímabilsins var jákvæð um 685 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 26,71% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 702 milljónir króna eða 37% af vaxtatekjum, samanborið við 668 milljónir króna (45% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2025.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 336 milljónum króna á móti 350 milljónum króna á sama tímabili 2025.
  • Eignir námu 34.646 milljónum króna og hafa hækkað um 776 milljónir frá árslokum 2025.  Þar af voru útlán 29.104 milljónir samanborið við 27.580 milljónir í árslok 2025.
  • Skuldir námu 27.367 milljónum króna og hækkuðu um 91 milljón frá áramótum.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Árshlutareikningur janúar - júní 2026


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389