Fara í efni  

Fréttir

Árshlutauppgjör Byggðastofnunar 30. júní 2008

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir janúar til júní 2008 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. ágúst 2008.  Hagnaður tímabilsins nam 8.769 þús. kr.

Hreinar vaxtatekjur námu 207.440 þús. kr. miðað við hreinar vaxtatekjur upp á 86.136 þús. kr. á sama tímabili 2007.  Hreinar rekstrartekjur námu 738.514 þús. kr. og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 729.745 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé voru 517.178 þús. kr.  Hagnaður tímabilsins nam því 8.769 þús. kr. miðað við 4.018 þús. kr. hagnað á sama tíma 2007.

Eigið fé Byggðastofnunar nam 2.081.289 þús. kr. eða 13.77% af niðurstöðu efnahagsreiknings.  Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 10,28%.  Samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 2,65% af eigin fé.

Eignir Byggðastofnunar í lok júní 2008 námu 15.114.045 þús. kr., þar af námu útlán 13.495.341 þús. kr. og hafa hækkað um 3.998.402 þús. kr. frá lok árs 2007.  Skuldir Byggðastofnunar námu 13.032.755 þús. kr. og hafa hækkað um 2.167.813 þús. kr. frá lok árs 2007.

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru í lok tímabilsins 366.041 þús. kr.

Nálgast má árshlutauppgjörið hér.

Tilkynning Byggðastofnunar til OMX kauphallarinnar.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389